Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1948, Síða 90

Skinfaxi - 01.11.1948, Síða 90
154 SIÍINFAXI BÆKIi R. ÞRJÁR ÍSLENZKAR SKÁLDSÖGUR. Þórleifur Bjarnason: Hvað sagði tröllið? Saga þessi gerist á aðfangasvæði Hornstrendingabókar. Virð- ist efnið hafa tekið höfundinn föstum tökum, enda kann hann á því mæta góð skil. Sagan gerist á síðari hluta nítjándu aldar og lýsir nöturlegum lífslcjörum fólks á yztu ströndum, vorkulda og horfelli, þar sem skútur franskra eru ævintýrið sjálft. Þó er bjargið mesta hjálpræðið, en hættuspil um leið að sækja þangað björg, fyglingurinn er kempan i leiknum. Þráður sögunnar er ekki mikill, aðeins kveikur sem vera ber. Óharðnaður unglingur kemst á vonarvöl eitt harðindavor eftir dauða föður síns og er tekinn af gildum bónda i ann- arri sveit. Undir drenginn renna þó svo góðar ættarstoðir, erfðir hæfileikar og dugnaður, að hann verður víkingsverk- maður, fyglingur og völundur á tré og járn. En liann er kalinn á hjarta. Hin kröppu kjör bernskuáranna hafa merkt liann, með vaxandi þroska verður hann hrotti og miskunnarlaus við náungann. Við skiljum við hann kvæntan ekkju hins gilda bónda, en dís birtu og vors, hinni ljúfu' og hláturmildu Sól- veigu hefur hann liafnað. Utan um þennan þráð er ofinn drjúgur vefur. Lýsingar af lifnaðarháttum fólksins eru slcýrar, margar persónur ljóslifandi, enda eru persónulýsingar ein sterkasta hlið höfundar. Bókin er vel samin, um það verður naumast deilt. Frásögn- in er ljós, stíllinn skýr og skrúfunarlitill, og hinir engaii veg- inn stórkostlegu atburðir halda lesanda vel við efnið. Höfundur er sögumaður góður, en hitt er engu siður rétt, að sögumaður- inn ber skáldið alla jafna ofurliði. Sagan er þrátt fyrir marga góða kosti ekki mikill skáldskapur, ytri aðstæður og um- búnaður sitja mjög í fyrirrúmi, óviða lcafað djúpt, innri bar- átta aðalpersóna helzt til stuttaraleg. Þrátt fyrir nokkra óþarfa útúrdúra, fer ekki mikið fyrir æskuhita eða örum sprettum. Höfundur er víðast settlegur um of. Þetta mun vera fyrsta bindi í löngu yfirlitsskáldverla um lifnaðarháttu fólks á þessum lijara. Er engum blöðum um það að fletta, að fengur verður að verkinu, því að höfundur er sjór af lýsingum og frásögnum. Hefur verkið eigi síður gildi fyrir þá sök, að sveitir þær, er það lýsir, þynnast nú óðum af fólki. Bókin er 261 bls. í allstóru broti. Ctgefandi er Norðri.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.