Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1948, Síða 91

Skinfaxi - 01.11.1948, Síða 91
SKINFAXI 155 Ási í Bæ: Breytileg átt. Þetta er sjómannasaga, eins og nafnið bendir til, og mun gerast í Vestmannaeyjum eina vetrarvertið eftir siðasta strið. Sagan hefst i vertíðarbyrjun, er þrír ungir sjómenn koma til eyjanna, og endar, er þeir fara burt á lokadaginn. — Sagan er sögð í fyrstu persónu eintölu af einum sjómannanna. Eigi verður með neinum sanni sagt, að skáldfákur höfundar fari á góðum kostum, en ýmsir sprettir eru óaðfinnanlegir, og jafnan er gaman að lesa fyrstu bólc höfundar. Yfir henni er oft og tíðum nokkur ferskleiki, sem ekki er annars staðar að finna. — Svo er og um þessa bók, þó að viða sé hún úr hófi og að þarflausu klúr og klámfengin. Lýsingar höfundarins á lifi sjómannanna, og þá sérstaklega á kvennafari þeirra og fylleríi, eru beztar, þó að sums staðar séu smekkleysurnar æpandi. En allar heimspekilegar vangaveltur og athuganir um pólitík eru nauða almennar, lágkúrulegar og flatar. Sennilega eru sumir kaflarnir allgóðar heimildir um bátaútveginn í Eyj- um, en öll er bókin mjög í brotum og persónur veikar. Sagan er 150 bls. Helgafell hefur gefið hana út. Jóhann Pétursson: Gresjur guðdómsins. Þetta er á margan hátt merkileg bók og um leið furðuleg. Sem saga er hún næsta lítils virði, og fátt er í henni af per- sónulýsingum. Bókin er í rauninni eintal cinnar sálar, næsta langdregið eintal hrjáðrar sálar, en það væri rangt að segja, að þetta eintal væri eklci allvel gert i köfium. Sumar lýsingar á hversdagslegum atburðum og viðbrögðum þessarar ein- mana sálar við þeim eru oft skrifaðar af sönnum móði og þan- þoi þeirra mikið. Þó að bókin sé enginn skemmtilestur, á hún samt skilið að verða lesin vegna efnisins. Auðsærra áhrifa gætir vissulega ailvíða, en slíkt er engin dauðasynd, og sums staðar sprettur fram ferskleiki frumsmíðarinnar af ólmum krafti. Höfundur býr yfir hæfileikum, en kunnáttuleysi og skortur á sjálfsgagnrýni sitja svo i fyrirrúmi, að óvist er, hvort þeir fá nokkru sinni notið sin til fulls. í þessum efn- um verður enginn óbarinn biskup, og þessa bók hefði þurft að skrifa aftur, og kannske oftar en einu sinni, áður en lmn kom fyrir almenningssjónir, þvi að hún minnir mest á frumriss. Af lestri bókarinnar verður manni þó helzt á að ætla, að endurritun hefði ekki verið á valdi liöfundar, því að til slíkra hluta er stilling og gaumgæfileg vinnubrögð nauðsynleg. En þrátt fyrir allt og allt, sem að bókinni má finna, verður
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.