Skinfaxi - 01.11.1951, Blaðsíða 5
SKINFAXI
101
glæsiiega bæi. Og þar gengur sú sögn, að eitt sinn hafi
konungurinn á leið sinni til Þrándheims gist hjá
einum slíkum hónda og um kvöldið gat kóngurinn
ekki varizt því, að orða það við bónda, hve vel hann
byg'gi og befði mikinn íburð. Þá sagði bóndi: „Bless-
aður vertu, ef þig vantar peninga, þá komdu bara
til mín.“
Eftir ræðu skólastjórans var örstutt blé. Siðan flutti
Helge Sivertsen ríkisritari erindi, sem hann nefndi:
Ríkið og ungmennafélagsstarfið. Hann kom víða við
og sýndi greinilega fram á nauðsyn þess, að þessi
holli menningarfélagsskapur stæði í nánu sambandi
við ríkið og þær menningarstofnanir sem það rekur.
Einkum taldi hann mikla þörf á, að nánari samvinna
tækist milli barna- og unglingaskóla og ungmennafé-
laganna. Þar sem algengt væri, að börn lentu á glap-
stigum er skólanum sleppir. Hann kom líka inn á
iivað ríkið ætti að ganga langt í styrkveitingum til
þessarar starfsemi o. fl. Að lokum gaf hann yfirlit
Lýðliáskólinn í Elverum.