Skinfaxi - 01.11.1951, Blaðsíða 23
SKINFAXI
119
Finnski þjóðdansaflokkurinn. Frá vinstri til hægri: Heimo
Kola, Anna-Maija Lehtola, Timo Panula, Helvi Jukarainen,
kennari, Matti Maijala, einsöngvari, Anja Yritys, Heikki Paan-
anen, Liisa Hurme, Juhani Yli-Rantala, Hilkka Puutio, Toivo
Linnankoski, Nanni Fliukkila, Jaako Heinisuo, Sirkka Viit-
anen, Pertti Heinonen, Yrjö Vasama, fararstjóri.
AÖ lokum var flokknum haldið kveðjuhóf. Fluttu
þar ræður sambandsstjóri U. M. F. L, sr. Eiríkur J.
Eiriksson, Stefán Runólfsson, Þorsteinn Einarsson,
iþróttafulltrúi, Sigurður Greipsson frá U. M. S. Skarp-
héðni, Axel Jónsson frá U. M. S. Kjalarnesþings og
Friðrik Magnússon, fulltrúi Finnsk-íslenzka félags-
ins. Fararstjóra og kennara flokksins voru afhent
heiðursmerki U. M. F. R. að gjöf. Fararstjórinn, Yrjö
Vasama, þakkaði fyrir hönd flokksins og lét í ljósi
mikla ánægju með förina. Síðan sýndi flokkurinn
þjóðdansa. Var samkvæmi þetta hið ánægjulegasta.