Skinfaxi - 01.11.1951, Blaðsíða 24
120
SKINFAXI
I lokaræðu sinni hér tilkynnti fararstjóri Finnanna,
að Stefáni Runólfssyni og Guðrúnu Nielsen yrðu
send heiðursmerki og viðurkenningarskjal finnska
ungmennasambandsins strax eftir heimkomu flokks-
ins. Þessi vinúttu- og viðurkenningarmerki komu um
hæl, og fylgdi þeim mjög vingjarnlegt bréf frá Yrjö
Vasama, þar sem hann leggur áherzlu á, hve öllum
í flokknum þótti mikið til íslandsferðarinnar koma.
Þakkar hann sérstaklega fyrir ánægjustundir hér,
gestrisni og vinsemd. Yrjö Vasama er varasambands-
stjóri finnsku samtakanna. Hann er maður hress og
hlýr í viðmóti, málamaður góður og þekktur rithöf-
undur.
í viðtali, sem ritstjóri Skinfaxa átti við Stefán
Runólfsson, lagði hann áherzlu á, að flokknum hefði
fyrst og fremst verið hingað boðið til þess að glæða
áhuga ísl. ungmennafélaga og æskufólks fyrir viki-
vökum og þjóðdönsum yfirleitt. — Er vonandi að
sú verði raunin á. Og víst er um það, að finnski
þjóðdansaflokkurinn lét ekki sitt eftir liggja, að svo
mætti verða. Svo skemmtileg og falleg var sýning
hans.