Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1951, Page 10

Skinfaxi - 01.11.1951, Page 10
106 SKINFAXI íslenzk skáld og rithöfundar III. IIALLUÓR KIL.I AIV LAXNESS . Halldór Kiljan Laxness er óefað um- deildastur íslenzkra rithöfunda. Má segja, að um hann hafi staðið svo að segja lát- laus styr í meira en aldarfjórðung, og þó er hann enn innan við fimmtugt. Flestir munu samt nú orðið játa hæfileika hans sem skáldsagnahöfundar, hina óvenjulegu listtækni hans, skáldþrótt og stílsnilld. — Ungur setti hann sér það mark að verða rithöfundur og hefur hann naumast feng- izt við annað en ritstörf um ævina. Þótt hann hafi ritað á máli, sem einungis nokk- uð á annað hundrað þúsund manna skilja, er hann á miðjum aldri kunnur af bókum sínum víða um heim, og eins má hann miklu fremur teljast efnaður maður. Má þetta teljast einsitætt í sögu íslenzkrar tungu. H. K. L. er fæddur í Reykjavík 23. marz árið 1902. Þrem árum seinna fluttust foreldrar hans að Laxnesi í Mosfells- sveit, og þar ólst hann upp. Hann var einn vetur í mennta- skólanum í Reykjavík, í 4. bekk, en hætti námi um vorið. Sama árið gaf hann út fyrstu bók sína, Barn náttúrunn- a r, þá 17 ára gamall. Eftir það dvaldist hann langdvölum er- lendis, og jafnan hefur liann ferðazt mikið víða um lönd. Fyrir nokkrum árum reisti hann sér gott hús á æskustöðv- um sínum skammt frá Laxnesi, og nefnir hann bústað sinn Gljúfrastein. Þar býr hann siðan. H. K. L. hefur alls skrifað um 30 bækur, af þeim eru 15 skáldsögur, en veigamestir eru skáldsagnabálkar hans fjórir: Salka Valka, (Þú vínviður hreini 1931, og Fuglinn í fjör- unni 1932), Sjálfstætt fólk I—I I (1934 og 1935), Ó1- afur Kárason Ljósvíkingur (Ljós heimsins, 1937, Höll sumarlandsins, 1938, Hús skáldsins, 1938, Fegurð him- insins, 1940), Jón Hreggviðsson, (íslandsklukkan, 1943, Hið ljósa man, 1944, Eldur í Kaupinhafn, 1946). Síðasttalda verkið, sem er söguleg skáldsaga, ritaði höf. í sjónleiksformi til sýningar við opnun Þjóðleikhússins. Nefndist leikritið ís- landsklukkan eða Snæfríður Islandssól. H. Ií. L. hefur einnig gefið út smásagnasöfn, ferðabækur, greinar og kvæðakver.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.