Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.11.1951, Qupperneq 18

Skinfaxi - 01.11.1951, Qupperneq 18
114 SKINFAXI izt ég vera meðal starfsfélaga hér á landi, og ég er afar þakk- látur þeim fyrir móttökurnar. Hvaða gildi hefur samstarf ungmennafélaganna á Norður- löndum? Það er að vísu annars staðar gert út um þau stærri málefni, sem snerta þjóðirnar sameiginlega. Samt sem áður er það engum vafa undirorpið, að það hefur mikla þýðingu fyrir samskipti þjóðanna, að fólkið hittist og kynnist hvert öðru. Það er gott að hittast frá Finnlandi Runebergs, Svíþjóð Geijers, Noregi Wergelands, íslandi Jóns Sigurðssonar og Dan- mörku Grundtvigs og veita því athygli. að hjörtu okkar slá fyrir sameiginlegum áhugamálum og lífshugsjónum, fyrir nor- rænum menningararfi, virðingu fyrir meðbræðrum okkar, frelsi þjóðanna og sjálfsákvörðunarrétti þeirra. Við þurfum einnig að koma saman og ræða þau málefni, er við höfum mismunandi skoðanir á. Þá skiljum við betur hvert annað, og það auðveldar lausn þeirra mála, er leysa þarf milli þjóðanna. Æskan á að leggja metnað sinn í að leysa þau vanda- mál, sem forustumenn núverandi kynslóðar hafa enn ekki ráðið fram úr. Ef þessari samvinnu er ekki haldið áfram, eiga hinar miklu fjarlægðir nokkra sök á því. En auðveldara er þó að ná sam- an nú en áður, og eftir hina örlagaríku atburði síðustu heims- styrjaldar finna hinar norrænu þjóðir betur nauðsyn þess að þoka sér sem mest saman. Að lokum innileg kveðja frá dönsku ungmennafélögunum til æskunnar í ættlandi sagnanna, með von um, að hin óleystu málefni milli þjóðana verði sem fyrst til lykta leidd á virðu- legan og ánægjulegan hátt, og með einlægri ósk um, að okk- ur auðnist að varðveita arf kynslóðanna. U ngmennafélagar! Vinnið ötullega að aukinni útbreiSslu Skinfaxa. FáiS unga fólkið, sem er að ganga í félögin til þess aS gerast áskrifendur. SendiS afgreiðslunni jafnóðum nöfn þeirra. Takmarkið er: Fleiri áskrifendur. Stærra og fjölbreyttara tímarit. Ef helm- ingur allra Umf. í landinu gerðust áskrifendur að Slcinfaxa, gæti hann stækkað um helming, án þess að liækka í verði.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.