Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1951, Page 22

Skinfaxi - 01.11.1951, Page 22
118 SKINFAXI Finnskur þjóðdansaflokkur heimsækir Island Á síðastliðnu sumri kom hingað til lands þjóð- dansaflolckur frá ungmennasambandi Finnlands. I flokknum voru alls 16 manns, 6 danspör, fararstjóri, kennari og 2 liljóðfæraleikarar. Flokkurinn kom hingað í boði Ungmemjafélags íslands og Ungmennafélags Reykjavíkur. En sá, sem mestan þátt átti í komu flokksins liingað, var Stefán Runólfsson, form. U. M. F. R. Móttökunefnd skip- uðu, auk Stefáns, Guðrún Nielsen og Stefán Ól. Jóns- son. Sá siðastt. dvaldist þó ytra, þegar flokkurinn kom. Flokkurinn kom hingað með Gullfossi 5. júlí frá Kaupmannahöfn. Sama kvöldið var haldin mót- tökusamkoma í Listamannaskálanum. Formaður móttökunefndar, Stefán Runólfsson, flutti ávarp og bauð flokkinn velkominn til landsins. Fararstjórinn, Yrjö Vasama, þakkaði. Mælti hann að lokum nokk- ur orð á íslenzku. Síðan dansaði flokkurinn við mikla hrifni áhorfenda, en Guðrún Nielsen skýrði dansana jafnóðum. Flokkurinn söng jafnframt finnska söngva, og Matti Maijala söng einsöng. Flokkurinn dvaldist hér 8 daga. Dansaði hann 4 sinnum í Tivoli við vaxandi aðsókn og góðar mót- tökur. Hann sýndi einnig á Þjórsármóti U. M. S. Skarphéðins og einu sinni í Hlégarði í Mosfellssveit. I Tívoli sýndi flokkurinn einnig fimleika og eins söng hann finnsk lög. Flokkurinn fór í 4 ferðir um nágrenni Reykjavík- ur, austur yfir fjall og á Þingvöll. Ræjarstjórn Reykja- víkur bauð flokknum austur að Sogi, og voru honum sýndar framkvæandir þar.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.