Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1951, Page 28

Skinfaxi - 01.11.1951, Page 28
124 SKINFAXI Jtf erfendum uettvancji 3 BANDARÍKI INDONESÍU Meðal farþega, er komu um borð í Surriento á höfn- inni í Djakarta á Java, var ungur lögfræðinemi. Þetta var einkar geðþekkur stúdent, alvarlegur mjög og síhugsandi. Hann skrifaði samkvæmt beiðni nafn sitt í dagbók mína. Neðan undir nafnið sitt skrifaði hann orðin Merdeka og Bhinneka Funggal I k a. En það var ekki fyrr en við vorum komin langleiðina heim til Evrópu, að ég fékk skýr- ingu á þessum orðum. Þetta eru kjörorð Indonesíu. Og síðar, þegar félagi minn hafði frætt mig nokkuð um eyjarnar sínar og hið mjög svo blandaða og ólíka fólk, sem þær byggir, lærði ég að skilja, hve geysi þýðingarmikið það er, að þegnar hins unga lýðveldis tileinki sér orðin Bhinneka Tun g‘g a 1 I k a, ekki aðeins í orði, heldur og í verki. Við sátum uppi á þilfari og ræddum um þau riki, sem eftir langa og harða baráttu fengu loks frelsi sitt upp úr heims- styrjöldinni síðustu, Hindústan, Pakistan, Ceylon, Burma, Filippseyjar, ísland og Indonesía. Talið beindist, að vonum, einkum að hinum tveim síðast nefndu. „Við erum skemmst á veg komnir,“ sagði félagi minn. „Til þess liggja margar ástæður. Herraþjóðin hafði ekki búið okkur undir að taka við sjálfstæði okkar. Okkar tápmestu og beztu menn fórust í hinni blóðugu byltingu. Hinir frjó- fyrsta lagi reyna að koma i veg fyrir, að þetta væri gert. Tækist það ekki, færum við tvímælalaust frá borðinu. Við létum ekki nægja að éta ekki matinn, og bera fyrir lystar- leysi, slæmsku í maga, eða því um líku. Við myndum standa upp frá borðinu, eins og Gunnar á Hljðarenda. Teldum okk- ur máske ekki hafa rétt til að gefa kinnhestinn — en frá borðinu færum við. En þegar — að dómi okkar bindindismanna — er verið að stela lifsgleði og lífsgæfu þúsunda og aftur þúsunda — manna og kvenna, fæddra og ófæddra, þá brosum við með, eða lát- um sem minnst á okkur bera. Enda þótt kurteisi sé góð dyggð, þá held ég, að við ættum að lcggja þessa liæversku niður.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.