Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1951, Side 30

Skinfaxi - 01.11.1951, Side 30
126 SKINFAXI Og íbúar hinnar frægu Balíeyju eru jafnvel enn Bramatrúar. Síðar kom Múhameðstrú til eyjanna, og náði hún svo sterkum tökum á íbúum þeirra, að þau trúarbrögð eru ríkjandi meðal meginþorra fólks á Indonesíu. f stjórnmálum eyjanna hefur oltið á ýmsu. Yfirráð þeirra hafa verið í höndum hinna og þessara valdhafa, konungsríki risu upp og hrundu til grunna. Erlendir stjórnendur brutust til valda, voru sigraðir og hrakltir burt. Á 14. öld sameinuðust eyj- arnar loks undir forustu Java. Þótt það eyjaveldi stæði eigi nema um tvær aldir, telja Indonesíumenn það merkan þátt í sögu þjóðarinnar og minntu tíðum á hann í sambandi við sjálfstæðisbaráttu hennar síðar. Á 16. öld koma Portúgalar við sögu eyjanna, en áður en fimmtíu ár voru liðin frá komu þeirra þangað, höfðu þeir verið hraktir burt af Hollending- um. Hollendingar lögðu síðan undir sig meginhluta eyjanna og réðu yfir þeim óslitið til hinnar síðustu heimsstyrjaldar. Japanir hernámu eyjarnar í ársbyrjun 1942. Hið miskunnar- lausa hernám Japana átti sinn drjúga þátt í því, að þjappa hinum ólíku íbúum saman og sjálfstæðiskröfurnar urðu æ há- værari. Þegar svo Japanir voru af Bandamönnum neyddir til þess að gefast upp, notuðu leiðtogar Þjóðfrelsishreyfingarinn- ar tækifærið og lýstu yfir sjálfstæði Indonesíu 17. ágúst 1945. Lokaáfanga sjálfstæðisbaráttunnar var að verða náð. Og þjóð- in tók sér í munn orðið Merkeka (þ. e. frelsi). M e r- d e k a ómaði í eyrum manna út um allar eyjar og sund. Fólkið gerði sér nú glæstar vonir um, að óskastund frels- isins væri upprunnin. Hollendingar væntu þess jafnframt, að þeim væri nú tekið opnum örmum, þar sem þeir höfðu átt drýgstan þátt í því, að frelsa þjóðina úr ánauð Japana. Báð- um þessum aðilum skjátlaðist hrapallega. Borgarastyrjöld brauzt út og bylting hófst í höfuðborg Java, Batavia. Þessi ægilega bylting kostaði miklar mannfórnir, stór og frjósöm landssvæði voru gereyðilögð, vélar og mannvirki jöfnuð við jörðu. Bardagar voru mjög harðir, og það var ekki fyrr en eftir fjögurra ára þrotlausa baráttu og eftir að Sameinuðu þjóðirnar höfðu skorizt í leikinn, að Hollendingar sáu sér þann kost vænstan að afsala sér stjórn eyjanna og viðurkenna sjálfstæði Indonesíu. Þetta gerðist 27. desember 1949. Indonesía var gjörð að lýðveldi með þingi í tveim deildum. Þingið situr í Djakarta (áður Batavia), höfuðborg landsins. Stjórnarskáin er sniðin eftir stjórnarskrá Bandaríkja Norður- Ameríku. Eyjunum er skipt í 16 ríki, 7 þcirra eru algerlega sjálfstæð, en 9 þeirra að nokkru leyti. Lýðveldið kallast

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.