Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1951, Side 34

Skinfaxi - 01.11.1951, Side 34
130 SKINFAXI Eiga ungmennafélögin að vera hlutlaus í trúmálum og stjórnmálum (Erindi fluftt á norrænu æskulýðsmóti í Krogerup 18. júní 1948. Höfundurinn er prestur í Kaupmannahöfn). Sú spurning, sem oss er ætlað að svara nú, hljóðar þannig: Eiga ungmennafélögin að vera hlutlaus í trúmálum og stjórn- málum? Til þess að vér megum skilja sjónarmið hvers annars, er það óumflýjanleg nauðsyn, að vér gerum oss ljóst, hvers kon- ar ungmennafélög vér höfum j huga. Vér, sem hér erum samankomin á ungmennafélagaviku Norð- urlanda, erum öll fulltrúar þess, sem vér hér í Danmörku nefnum þjóðleg æskulýðsstörf. Starfsaðferðir vorar eru ef- laust allsundurleitar, en markmið vort er allt að einu hið sama, að ungmennafélögin eigi að geta rúmað innan sinna vébanda allan æskulýð, hvar sem hann kann í flokki að standa í trúmálum og stjórnmálum, og að hlutverk vort sé, að beina athygli unglinganna að þeim menningarlega arfi, sem varðað hefur leiðina frá örófi alda, svo unglingunum verði það ljóst, að þeir eigi skyldur við hann að rækja, að hann sé jarðvegur lífs þeirra og athafna. f ræðu minni á ég því ekki við stjórnmálaleg ungmennafé- lög eða önnur þau félög, sem hafa einskorðuð markmið, held- ur hin, sem vér hér í Danmörku nefnum „hin þjóðlegu“. Auk þess vildi ég mega bæta því við, að hvað oss Dani snertir, er „hið þjóðlega“ e. t. v. víðtækara en hjá öðrum Norðurlandaþjóðum. Vér eigum þar ekki einvörðungu við það, sem snertir starfslegt samfélag vort, stjórnmálalegt, hagfræði- legt, menningarlegt, félagslegt. Skilningur vor er sá, að „þjóð- in“ sé sköpunarverk guðs, að þjóðlífið sé náðargjöf guðs oss til handa. Guð hefur gefið oss vort danska þjóðlíf, og það er augljóslega ætlunarverk hans oss til handa, að vér lifum sam- félagslífi voru í dönskum anda, enda er það oss samkvæmt sköpunarskipun hans, eina færa leiðin til lífræns mannfélags. Og svo vissulega sem hið andlega líf gengur í arf frá ættlið til ættliðs, fyrir tilstilli tungunnar, svo vissulega verður móður- málið einnig sá ódáinsbikar, sem lífrænt mannfélag veitir oss. Þetta er sú grundvallarskoðun, sem m. a. fær oss Dönum fullan skilning á baráttu ykkar Norðmanna fyrir landsmáli ykkar, enda þótt það torveldi oss að skilja tungu yðar.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.