Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1951, Síða 35

Skinfaxi - 01.11.1951, Síða 35
SKINFAXI 131 Ég vona, að þessi inngangsorð nægi til að gera yður ljóst, hvað ég hef í huga og hver hugsun liggur að baki orða minna í dag. Mér er raunar fullvel ljóst, að þessi kristilega grundvallar- skoðun á sér ekki jafn sterkar stoðir í öllum þeim ungmenna- félagahreyfingum Norðurlanda, sem hér eiga fulltrúa, en ég bið yður öll vel að gæta þess, að þetta er sjónarmiðið, sem þessi orð mín byggjast á. Til þess að svara þeirri spurningu, er fyrir liggur, vildi ég mega rekja sögulega, hvað hlutleysi merkir, og hvert það stefnir, og færa svarið þannig fram í dagsins ljós. — Og að sjálfsögðu verða þessi orð mín mótuð af þeirri reynslu, sem oss Dönum hefur í skaut fallið. Árið 1916 sagði Jeppe Aakjær um Danmörku, að hún væri eins og brjóstmylkingur, sem nyti öruggra mak- inda, meðan lieimurinn stæði i björtu báli umhverfis vöggu hennar. Þessi orð skilgreindu fyrir dönsku þjóð- ina þýðingu hlutleysisins. Á meðan meginhluti Norður- álfu engdist af þjáningum styrjaldarinnar, naut Dan- mörk öryggis innan heimilisveggja, svo var hyggind- um forystumanna vorra fyrir að þakka. Þjóðir Norð- urlanda fóru raunar ekki alveg varhluta af ógnum styrjaldarinnar. Sjómenn vorir sigldu á höfum úti. Þeir urðu að sinna hættulegum störfum sínum og hér í Danmörku var svo liögum háttað, að þúsundir sam- landa vorra, er hjuggu sunnan landamæranna, urðu að feta hin þungu spor til vígvallanna i þjónustu við ann- að ríki. Því fór ljarri, að vér létum oss þetta í léttu rúmi liggja; hinu verður þó ekki neitað, að í heild séð var oss hlíft við ógnum styrjaldarinnar. Þessi reynsla af skjólvæng hlutleysisins yfir oss gegn þjáningum og erfiðleikum skóp í hugum vorum til- beiðslukenndan átrúnað á sjálft eðli hlutleysisins og vakti hjá oss það viðhorf, að hlutleysið væri æðsta og auðnuríkasta markmið lífsins. Lif vort á þeim frið- arárum, sem á eftir fóru, var mótað af þessu viðhorfi. Að vera hlutlaus þýðir það, að neita að taka þátt í þeim átökum, sem umhverfis oss eru háð. En hversu 9*

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.