Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1951, Síða 57

Skinfaxi - 01.11.1951, Síða 57
SKINFAXI 153 föstum tökum og leyst með sóma, þrátt fyrir ýmsa erfiðleika af hálfu okkar sjálfra og náttúrunnar. Verkefni eins landsmóts er margþætt. Einn þáttur þess eru íþróttirnar. Við dáum oft islenzkt landslag, en framar allri landslagsfegurð eru hraustlegir, þjálfaðir og þróttugir líkamar æskufólks, sem ber höfuðið hátt. Nú er aðstaða ykkar til undirbúnings iþróttaiðkana allmis- jöfn, en hvar sem þið eruð og hver sem aðstaðan er, þá er hægt að æfa iþróttina og þjálfa líkamann. Ymis hjálpargögn eru nærtækari nú en fyrr og íþróttakennarar víðar eða ein- staklingar, sem kunna nokkuð til iþrótta, sem má ráðfæra sig við og jafnvel fá æfingatöflur hjá. í þessu sambandi má benda á eftirtalin gögn: Frjálsar íþróttir. (Útgefandi: Jens Guðbjörnsson). Æfingaseðlar. (Eftir landsþjálfara frjálsiþróttasambands ís- lands). Brögð og varnir í glímu. (Fræðslumálaskrifstofan). Knattspyrnukverið. Leiðbeiningar um handknattleik. (Baldur Kristjónsson). Vaxtarækt. (Fimleikaæfingar — Jón Þorsteinsson). Sund. (Útgefandi: Jens Guðbjörnsson). Leikfimi. (Útgefandi: Jens Guðbjörnsson). Skólaíþróttir. (Fimleikaæfingar — Fræðslumálaskrifstofan). Heilsufræði íþróttamanna. (Útgefandi: Í.S.Í.). Ýmsar leikreglur. (Bókaútgáfa Menningarsjóðs). Minnist þess, að þið þurfið ekki sérstaklega fimleikasal, til þess að ná mýkt, fimi eða þoli. Göngur og hlaup til skiptis undir berum liimni um vegleys- ur eða troðnar brautir, veitir þol, en munið að klæða ykkur vel. Mýkt og fimi og jafnvel séræfingar vissrar íþróttagreinar má æfa í litlu herbergi. Bað geta allir veitt sér, þó ekki sé til baðstofa, kerlaug eða steypa. Þvottaskál, vatnsfata, þvottapoki og handklæði eru alls staðar nærtæk tæki og þá sápa og vatn. Þolgefandi og mýkjandi æfingar þurfa allir að leggja á sig, sem vilja ná færni i einhverri íþrótt eða starfshæfni í dag- legu lífi. Góðir ungmennafélagar, gerum íþróttaiðkanir að daglegri venju, búið ykkur undir þátttöku í Landsmóti U.M.F.Í. að Eiðum næsta sumar með markvissum æfingum. Látið ekki fámenni og skort íþróttamannvirkja hefta framtakið. Fyrst er að vilja, síðan að reyna og liafa lióf i hverjum leik. Hittumst vel búin að íþróttum að Eiðum næsta sumar.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.