Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.11.1951, Qupperneq 59

Skinfaxi - 01.11.1951, Qupperneq 59
SKINFAXI 155 Breytt tilhögun á útkomu Skinfaxa MeS þessum árgangi Skinfaxa hefur orðið nokkur breyting á ritinu. Undanfarin ár hafa komið út 2 hefti árlega, vor og hausthefti, vorheftið venjulega 4—5 arkir, en haustheftið 5—6 arkir. Heftin tvö, sem áður eru komin á þessu ári hafa verið 3 arkir, en þetta hefti 4 arkir. Þessi breyting á ritinu er gerð samkvæmt samþykkt sambandsráðsfundar U.M.F.Í., á síðast- liðnu hausti. Ýmsum þótti heftin of stór og þunglamaleg, en í 5 arka bók í Skinfaxabroti þarf mikið efni, og því þurfa greinar að vera langar og viðamiklar. Með fleiri og smærri heftum má hafa efnið fjölbreyttara og nýrra og fremur miðað við líðandi stund. Ritstjórinn hefur fyrir alllöngu komizt á þá skoðun, að heppilegasta tilhögunin á útkomu Skinfaxa væri sú, að af ritinu kæmu 4 hefti árlega, 3 arkir hvert, eða alls 12 arkir. Enn hefur ekki þótt kleift að haga útkomunni þannig, in. a. vegna þess, að þá þyrfti ritið að stækka um 2 arkir á ári, en til þess er fjárhagur ekki fyrir hendi. En úr þessu gæti orðið,væri heppilegast, að heftin kæmu út i janúar, april, júlí og október. Slíkt ársfjórðungsrit yrði áreiðanlega meiri og betri tengiliður milli félaga og héraðasambanda en Skinfaxi hefur verið undanfarið. Hefur ritstjóri oft harmað, að ritið hefur ekki getað sinnt þvi hlutverki sem skyldi. Væru heftin fjögur, væri fremur tiltækilegt að segja frá og talca til meðferðar þau mál og efni, sem efst eru á baugi. Þannig yrði ritið raunhæfara og tímabærra. Ungmennafélagar ættu að senda Skinfaxa fréttir og frásagn- ir af störfum félaga sinna og héraðssambanda. Myndir eru einnig kærkomnar. Allt slíkt tengir ritið við Umf. Annars er orðið frjálst um Skinfaxa. Umf. ættu ekki að spara að segja álit sitt á honum. Komi fram bendingar eða aðfinnslur, sem veigur er í, verða þær að sjálfsögðu birtar. S. J. Frá Umf. Staðarsveitar. Ungmennafélag Staðarsveitar efndi til íþróttanámskeiðs á félagssvæðinu dagana 10.—23. júní. Þátttakendur voru alls um 30, drengir og stúlkur, ungir sem eldri. Bjarni Andrésson, for- maður sambandsins, kenndi og stjórnaði námskeiðinu. Kenndi hann handknattleik, fimleika og frjálsíþróttir. Veður var slæmt fyrstu daga námskeiðsins, en það kom ekki að sök, því að félagið á rúmgott samkomuhús miðsveitis. Félagsmenn sýndu einstakan dugnað og mættu milli 20 og 30 á hverju kvöldi, enda þótt sveitin sé strjálbýl og bæjar-

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.