Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1951, Síða 60

Skinfaxi - 01.11.1951, Síða 60
156 SKINFAXI leiðir langar. 17. júní hélt félagið innanfélagsmót að Ytri- Görðum og fór það hið bezta fram. Seinni vikuna, sem námskeiðið stóð, tóku félagar sig saman og byggðu sundlaug að Lýsuhóli þar í sveitinni. Fyrir fáum árum var borað þar eftir heitu vatni og fékkst þá enginn fullnaðar úrskurður um, hversu heitt eða mikið vatn væri þar í jörðu. Þarna eru nú 2 til 3 sekúndulitrar af 43° heitu vatni. í tilefni af samnorrænu sundkeppninni og með tilliti til þess, að fjárhagsráð hafði neitað um fjárfestingarleyfi fyrir sundlaugarbyggingu, tóku félagsmenn sig saman og hlóðu upp laug úr torfi. Er hún 12%x6% m. Félagsmenn unnu verkið í sjálfboðaliðsvinnu og stóð það yfir i 3 daga. Fyrsta daginn mættu 9 manns, annan 16 og þriðja 27. Þarna unnu bæði drengir og stúlkur og var vel unnið, enda þótt beinn gróði væri ekki i aðra hönd. Vinnugleði og samhugur gerði það að verkum, að fólkinu fannst tíminn alltof fljótur að líða. Mikill áhugi var í héraðinu fyrir samnorrænu sundkeppn- inni en aðstæður voru mjög erfiðar vegna skorts á sundlaugum. Er enginn vafi, að útnesingar fagna og þakka Umf. Staðar- sveitar fyrir dugnaðinn, að hafa komið upp bráðabirgðar- laug að Lýsuhóli, enda þótt ófullkomin sé. Er það trú mín og von, að Snæfellingar leggist allir á eitt um að koma þar upp laug i framtíðinni, sem allir geti verið ánægðir með. Laug, sem stenzt veðrabrigði og fullnægir þeim kröfum, sem nútíminn gerir. Umf. Staðarsveitar hefur með þessu starfi sýnt, að það kann að meta þá hollustu, sem heitt rennandi vatn veitir, og hefur þvi reynt að skapa sér aðstöðu til þess. Fyrsta sunnudaginn eftir að laugin var hlaðin mættu um 60 Staðsveitingar og syntu í henni enda þótt hún væri þá enn ekki orðin full. Hygg ég, að þetta sé vottur þess, hvers Staðsveitingar vænta af þessum stað og vona ég að þetta verði upphaf að varanlegri framkvæmdum á Lýsuhóli. Rannsókn- arráð ríkisins ætti að láta gera fullnaðar rannsókn á, hve jarð- hiti er þarna mikill. Fengist þá úr þvi skorið, hvað hægt er að gera þarna í framtíðinni. Bjarni Andrésson. Útgefandi: Sambandsstjórn Ungmennafélaga íslands. Pósthólf 406 — Reykjavík Afgreiðsla: Edduhúsinu, Reykjavík, efstu hæð. Ritstjóri: StefánJúIíusson, Brekkugötu 22, Hafnarfirði. FÉLAGBPIIENTBMIOJAN H.F.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.