Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1972, Blaðsíða 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1972, Blaðsíða 15
Undir bryggj unni sést þá í ótal eintrjáninga, sem eru á hraðri leið burtu. Þetta skeður helzt í myrkri. — I stórri verzlun í landi keypti ég í grandaleysi nokkur jólakort; þegar ég kom út, voru þau horfin. — Umboðsmaðurinn okkar missti sjónvarpstækið af heimili sínu þegar stór rúða var brotin og tækið hirt. Refsing fyrir þjófnað er heng- ing opinberlega, sama hvort stol- ið er 1 £ virði eða 1000 £. Fólk hefur gaman af að horfa á heng- ingar, sennilega lítil samúð með klaufa, sem lætur komast upp um sig. Það er fjölmennt við svona athafnir og myndast mann- þröng. Þá eru einmitt mestu upp- gripin hjá vasaþjófunum. Það er komið við í Dakar í hverri ferð til þess að taka vistir. Höfnin er afar stór og þangað koma líka mörg fiskiskip. Við olíubryggjurnar er sami sóða- skapurinn og í Las Palmas. Johann Pedersen, stór og mikill skipper frá Skagen, sem talar skemmtilega józku, kom í heim- sókn í Dakar seinast og færði okkur væna öskju af stórri og góðri rækju, sem var mjög Ijúf- feng. Hann er með rækjubát sem sheikinn í Kuwait á. Það er einn af 400 bátum, sem er í eigu hans og margir þeirra eru að veiðum við Afríku. Þeir hafa sérstaka bylgju til að talast við á en Grikk- irnir, sem eru á hinum bátunum, kæra sig ekkert um að miðla Jóa af því sem þeir vita. Hann kemst vel af án þeirra og finnur sína rækju sjálfur í lítið leitartroll, setur út bauju, þegar hann vérður var og fer svo að toga. Jói segir, að Fransararnir frá Senegal elti sig og byrja að toga, þegar hann er búinn að finna miðin, auk þess steli þeir baujunum. Það er ann- ar hvítur maður á, norskur vél- stjóri eða tæknifræðingur, sem getur lagfært allt sem bilar. Svo eru 5—7 negrar, sem hjálpa til við veiðarnar. Rækjan er eitt- hvað verkuð og síðan fryst í -h40°C. Meðalveiði telur hann vera 2l/% tonn á 19 dögum. Þessu er skipað beint um borð í flutn- VÍKINGUR ingaskip í Dakar og flutt til U. S. A. Jói hefur dágóð laun eða 500$ fast á mánuði, sem hann getur sent heim og lagt á banka, svo hefur hann 18$ á tonn og 8% af sölunni í U. S. A. auk annarra smáhlunninda. Skattaspursmálið klárar hann á þann hátt, að víkja nokkr- um dölum að viðkomandi skatta- karli í Dakar og fær út á það þrælstimplaðar kvittanir fyrir skatti greiddum í Senegal. Sheik- inn hlýtur að hafa samið um veiðileyfi í Sierra Leone, þar veið- ist rækjan grunnt við Sherbro Is- land. Þær eru frægar krabbaveizl- urnar (kráft-kalas) í Svíþjóð. Á undanförnum árum hefur fram- boðið á krabba smáminnkað og hann hækkað í verði. Þá hafa menn farið að spara við sig krabbann, jafnvel svo að notaður hefur verið aðeins einn á bandi yfir borðinu en annað til veizl- unnar ekkert sparað. Ekkert þurfti að spara í rækju- veizlunni hans Jóa. Hún fór virðulega fram á bátaþilfarinu, undir sólsegli. Menn gerðust teit- ir og margt var spjallað. Jói sagði mér af íslenzku síldarskipunum, sem koma til Skagen. Hann kvartaði yfir því, að það væri erf- itt að skilja þessa menn sem kæmu frá hinni norðlægu eyju. Gizkaði hann á að það væri ekki nema einn á hverju skipi, sem væri nokkurnveginn fær á danska tungu. Það er af sem áður var, hér „i den tid“, gátu þó flestir unglingar bjargað sér á dönsku. Hverjum á að kenna um, kennur- um eða nemendum — eða þá að skólakerfið er breytt. Þá er bezt að slá botninn í þetta, sem er orðið mun meira en ég ætlaði í upphafi. Eins og drep- ið er á hér að framan, vil ég vekja athygli á ofveiðinni og ágangin- um, sem er stöðugt að aukast allt í kringum Afríku, einmitt nú þeg- ar við þurfum að vera nógu á- kveðnir í okkar málum. Beztu kveðjur. J. Steingrímsson. ENGIN KEÐJA ER STERKARI EN VEIKASTI HLEKKURINN TRYGGING ER NAUÐSYN ALMENNAR TRYGGINGAR PÓSTHÚSSTRÆTI 9 SÍMI 17700 15 HI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.