Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1972, Blaðsíða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1972, Blaðsíða 19
hans heyrðist gegnum þokuna, hafði skipið rekist með stefnið á jakann með feikna þunga. Við áreksturinn höfðu skip- verjar, sem á verði voru olltið um koll. En Harris skipstjóri gaf fyrirskipun um að fella segl- in og manna dælurnar. Einn há- seta kom æðandi og sagði með andköfum, að sjór flæddi inn í skipið gegnum gat á kinnungn- um. Harris skipstjóri þaut í of- boði undir þiljur og skildi 1. og 2. stýrimann eftir á verði í brúnni. Hann varð að hrinda frá sér hálfklæddum farþegum, sem urðu fyrir honum á þilfarinu. Undir bakkanum virti hann fyrir sér við flöktandi ljós olíu- luktar skemmdirnar á bógnum og sá strax að skipinu yrði ekki bjargað þar sem geysimikill sjór flæddi inn í það, og að það myndi sökkva fljótlega. Skipstjórinn flýtti sér aftur á stjórnpall, en var stöðvaður á leiðinni af konu, sem var á leið undir þiljur í leit að fatnaði handa fáklæddum konum og börnum og hrópaði í skelfingu sinni „skipstjóri hvað eigum við að gera?“ Hálf utan við sig ýtti hann kon- unni frá sér og sagði „þú verður að gera það bezta sem þú getur.“ Þegar hann kom upp á stjórnpall sá hann að stýrimenn hans voru að hamast við að koma út björg- unarbátunum, sem voru tveir, eins og þeir hefðu getið sér til um hvers hann hefði orðið vís- ari um ásigkomulag skipsins. Parker 2. stýrimaður fór í minni bátinn ásamt fjórum há- setum og einum farþega sem kastaði sér í bátinn í örvæntingu, og lagði frá skipinu. Þar sem Rhodes 1. stýrimaður glímdi við að fá stjórnborðsbát- inn lausan úr bátsuglunum, flykkt- ust hinir 64 farþegar að lunning- unni og ruddust hver um annan þveran ofan í hann. Þegar bátur- inn loks komst í sjóinn voru í honum 31 farþegi og átta háset- ar ásamt fyrsta stýrimanni í einni þvögu eins og fé í rétt. Finnskur háseti Holmes að nafni brauzt aftur um borð til að bjarga ungri dóttur ísabel Edgar, en þau urðu þau síðustu ásamt einum sem kastaði sér í ofboði á eftir þeim, sem tókst að kom- ast frá skipinu. Þeir farþegar, sem enn voru um borð þyrptust utanum skip- stjórann, rífandi í hann og hrópuðu „skipstjóri“, „skipstjóri það eru ekki fleiri! Hvað eigum við að gera?“ Allt í einu heyrðist kallað „skipstjóri! skipstjóri!“ Var það rödd Parkers annars stýrimanns sem hrópaði úr minni björgunar- bátnum og grátbændi skipstjór- ann að kasta sér fyrir borð, áð- ur en það væri of seint, hann gæti ekki gert meira hvort eð væri. Það brakaði og brast í þil- farinu undir fótum Harris skip- stjóra. Allt í einu hallaðist skip- ið og sjór flæddi inn á þilfar. Harris skipstjóri kastaði sér fyr- ir borð. Uppi yfir sér heyrðu þeir sem farið höfðu í flýti og tvísýnu í litla björgunarbátinn köll þeirra, sem enn voru um borð í „William Brown“. Allt blandaðist saman, hróp um hjálp, ásökunarhróp til skipstjórans, aðrir hrópuðu til guðs, og enn aðrir hrópuðu að nokkrum skipverjanna yrði skip- að að fara úr bátunum, til þess að minnsta kosti að rýma fyrir börnunum. Enginn svaraði, en Rhodes 1. stýrimaður, sem sat skjálfandi aftur í stærri björgunarbátnum heyrðist tauta, „vesalings fólk- ið.“ Þið deyið aðeins á undan okkur. Æðisgengin örvílnun greip um sig meðal farþeganna um borð, þegar skipið allt í einu seig niður af ísjakanum, hristist og nötraði stafna á milli og bógur þess seig dýpra og dýpra í ís- kaldan sjóinn. Með snöggu hand- taki hjó Holmes háseti í sundur fangalínu stærri bátsins og bát- arnir hurfu hægt út í þokuna, sem umlukti skipið, sá minni steypandi stömpum, hinn ramb- andi á bæði borð af þunganum. Að lokum heyrðist eins og ör- væntingarfull stuna út úr þok- unni, síðan þögn. Bátarnir vögg- uðu í öldubroti, „Wiliam Brown“ var sokkinn! Alla nóttina rak bátana í sjón- máli hvors annars og Harris skipstjóri var enn ekki ákveðinn, hvort reyna ætti að ná til Cape Race á Nýfundnalandi, sem var í um 200 mílna fjarlægð til vest- urs eða að láta berast suður á bóginn, þar sem von var meiri skipaferða. Klukkan 5 um morg- uninn nálguðust bátarnir hvorn annan. Harris skipstjóri talaði mjög lágt við Rhodes, rétti hon- um kort og sextant sem hann tók treglega við, en ítrekaði við skip- stjórann að taka nokkra farþega úr stærri bátnum. En Harris skipstjóri neitaði því. „Við höfum engin segl“ hvísl- aði Rhodes ákafur, „báturinn er flóðlekur og svo hlaðinn og þungur í sjónum að illmögulegt er að stjórna honum. Við verð- um að gera einhverjar ráðstaf- anir, — varpa hlutkesti. Er þér ljóst hvað ég á.við?“ „Já.“ „Hvað?“ Harris skipstjóri starði furðu lostinn (fjarrænum augum) á stýrimann sinn og sagði — „Aðeins — sem neyðarúrræði, Rhodes.“ (Örþrifaráð). Harris sagði Rhodes að þeir skyldu fylgjast að upp að strönd Ný- fundnalands, gaf hásetum fyrir- mæli um að hlýða Rhodes af- dráttarlaust, og skipaði síðan há- setum sínum að róa og hvarf út í þokuna. Finnski hásetinn Holmes fór úr jakka sínum og rétti konu í bátnum, aðrir hásetar fylgdu fordæmi hans og gerðu slíkt hið sama. Síðan tóku þeir að róa. Farþegarnir jusu. Köld hafgolan að leik við undirölduna var ekki nógu sterk, til að dreifa þokunni sem umlukti þá. Rhodes stýri- maður sat þögull í skutnum. Eng- inn sagði neitt. Holmes háseti útbjó „segl“ með ári og vattteppi, en það gerði lítið gagn. Fyrsti dagurinn fór að mestu í að róa, ausa og VÍKINGUR 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.