Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1972, Page 29
Mörg börn; miklar áhyg-g-jur.
Engin börn; engin hamingja.
❖
Jón Ólafsson skáld og ritstjói'i kvað
eftir heimkomu sína frá Ameríku:
Hálfan fór ég hnött í kring,
heim er kominn aftur.
Hafði með mér þarflegt þing;
það var góður kjaftur.
Mannskepnan er hið eina dýr jarð-
arinnar sem roðnar — og sem þarf
þess.
*
t afmælisveizlunni.
1 tilefni af hundrað ára afmæli fyrir-
tækisins hefur stjórnin samþykkt, að
greiða auka mánaðarlaun öllum þeim,
sem starfað hafa hjá því frá upphafi!“
— Heyrirðu ekki bjálfinn þinn! Maðurinn minn er að spyrja, hvað þú sért að
gera í rúminu hans.
VÍKINGUR
Skipstjórinn biður yður að koma og
setjast við sitt borð. — Það er slagsíða
á skipinu.
Árið 1980 munu flestar fjölskyldur
eiga tvo bíla. Núna skulda þær ekki
nema einn.
Hjálpsemi.
„Hvað ertu að gera uppi í eplatrénu
mínu, þorparinn þinn!“
„Ég er að leita að skemmdum eplum,
svaraði stráksi um hæl.
Gesturinn á veitingahúsinu:
„Spilar hljómsveitin hér eftir
pöntun?“
Já herra minn, svaraði þjónninn.
„Biðjið þá, að spila poker þangað
til að ég hefi lokið við að borða.“
Hún: „Á morgun eigum við 20
ára giftingarafmæli. Hvernig finnst
þér að við ættum að halda upp á
daginn?"
Hann: Hvað segir þú um að við
höfum tveggja mínútna þögn?“
29