Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1972, Page 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1972, Page 33
Frá vinstri: Helgi Benediktsson, sem gerður var að heiðursfélaga Bylgjunnar, Ólafur K. Júliusson og Kristján Ásgeirsson. VÍKINGUR 33 fjörð. Lagt var upp í Ishús á Hvammstanga þar til sláturtíð byrjaði, en um veturinn var Helgi með Ingólf fyrir Loft. Svo var hann með Kára frá Langeyri, fyrir Þorvarð og Sigurð, á færa- fiskiríi og rekneta. Helgi Benediktsson hætti sjó- mennsku 1950. Rak verzlun í 9 ár og eftir það vaktmaður hjá Eimskip þar til hann vistaði sig á Hrafnistu þar sem hann dvelur nú. Kristján Ásgeirsson skipstjóri, fæddur á Hvítanesi við Isafjarðardjúp, 23. sept. 1899. Foreldrar Ásgeir Einarsson og Halldóra Pétursdóttir. Ásgeir drukknaði 7. jan. 1905. Þá fluttist Kristján að Eyri við Skötufjörð, til Einars Þorsteins- sonar og konu hans, Sigrúnar Baldvinsdóttur, og var þar til 17 ára aldurs. það svo vel, að Helga bauðst Sverrir, sem Axel Ketilsson átti, og var með hann nokkuð lengi. Svo tók hann Eggert Ólafsson, sem Hálfdán Hálfdánsson átti, og var skipstjóri á honum lengi. Halfdán var heiðursmaður og lík- aði Helga vel við hann, eins og við þá framantöldu Óskar og Axel. Nú fluttist Helgi alveg til Reykjavíkur til að taka stærri bát, sem var Arthur Fanney, á síldveiðar, og var lagt upp í Hrís- ey, en stutt varð í þessu, þar sem hún var seld. Næst var það Hösk- uldur, sem Helgi tók fyrir Óskar Halldórsson á þorsk- og rekneta- veiðar. Var Helgi með bátinn um tveggja ára skeið, þá brotnaði í honum vélin og varð að leggja honum á Siglufirði. Seinna var hann seldur Steindóri Hjaltalín, að Helga minnir. Næst tók hann Svan fyrir Loft Loftsson á reknet norður á Mið- þess hafa þau alið upp sonar- dóttur sína. Helgi Benedihtsson Hann er fæddur á Dönustöð- um í Laxárdal, Dalasýslu, 29. okt. 1893. Fluttist til Bolungavíkur árið 1900. Hóf róðra á árabát með Hirti Sæmundssyni 1910. Svo hjá Elíasi Magnússyni á mótorbát í 3 ár og reri þá á Skagaströnd á sumrin. 1915 kenndi Ólafur Kárason nokkrum til pungaprófs, sem svo var kallað, og lauk Helgi því prófi. Voru þá fyrstu stóru bát- arnir að koma til ísafjarðar og réðist hann á Leif hjá Guðmundi Þorlákssyni, en nokkru síðar til Þorsteins Eyfirðings á Sóleyna. Nokkru síðar fór Helgi til Reykjavíkur og réðist þá á fyrsta bátinn, sem hann fór með skips- stjórn á, var það Mínerva, sem Óskar Halldórsson átti, og gekk

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.