Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1972, Qupperneq 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1972, Qupperneq 35
ekki störf, nema þeir séu lög- skráðir og líti þá sjálfir eftir að skoðunarvottorð og umsamin eða lögboðin slysatrygging sé í lagi. Enda ber skylda til að staðfesta þessi atriði við lögskráningu. Að lokum þetta. 1 upphafi gat ég þess að vélvæðing, fækkun áhafn- ar og aukinn hraði skapaði nýjar hættur. Þessar hættur verðum við að takast á við og leysa með til komu nýrra skipa. Þróunin hlýt- ur að verða sú sama hjá okkur og öðrum þjóðum, með aukna sjálfvirkni og fækkun áhafnar. Ekki mega samtök sjómanna standa á móti þeirri þróun, eigi hún sér stað innan skynsamlegra marka. Það verður að setja ákveðnar kröfur um stig sjálfvirkninnar og leggja áherzlu á fræðslu fyrir starfandi yfirmenn og nemendur um meðferð hennar. öryggismálin verða ekki í lagi, nema sjómenn skilji nauðsyn þeirra og láti sig skipta fram- gang þeirra, umgengni og eftir- lit. Lagasetning, boð og bönn koma ekki að haldi, ef skilning á nauðsyn þeirra vantar. Páll Guömundsson. á að manna væntanlegan skuttogaraflota Islendinga? Hætt er við því, að okkar bjart- sýnu útgerðarmenn hafi ekki hugsað út í það. Það er ekki seinna vænna að fara að hugsa út í þá hluti. Okkur vantar á næstu árum a. m. k. 500 þjálfaða sjómenn á þessi skip. Við skulum minnast þeirra tíma, þegar við eignuðumst ný- sköpunartogarana. Hvað gerðist þá úti á landsbyggðinni ? Manna- leysi á skipunum. Við skulum taka t. d. togarann Sólborgu, sem seldur var í brotajárn, eftir nokkur ár, einn stærsti og bezti togarinn. Nú eru fsfirðingar að fá þrjá skuttogara. Það verða að vera til menn á staðnum á þessi skip. Það er ekki hægt að gera út skip með mannskap, hingað og þangað að. Þetta ættu ráðherrar og útgerðarmenn að íhuga, áður en fest er kaup á skipunum. En hvernig má úr þessu bæta? Við þurfum að eignast skóla- skip, og það strax. Það þarf að þjálfa ungu mennina, sem fást til að stunda sjó. Hvaða ungir menn fásttil að stunda sjó? Jú, það eru þeir ungu menn, sem klæjar í sitj- andann á skólabekkj unum af at- haf naþrá. Þessum drengj um gleymir hið opinbera. _Það er til æskulýðsfulltrúi rík- isins og Æskulýðsráð Reykja- víkurborgar. En hvernig starfa þessar stofnanir fyrir æskulýð- inn? Jú, íþróttir og skemmtanir. Mér dettur í hug bráðabirgða- lausn á þessu. Það er, að rann- sóknaskipin yrðu tekin í þetta verkefni yfir sumarmánuðina í einn mánuð hvert skip. Það yrðu þrír mánuðir á sjó og hinn fjórða mánuð mætti kynna fyrir drengj unum fiskverkunarstöðvar og fiskverkunarstörf. Þjálfun þessara drengja yrði að koma þannig fyrir, að þeir fengju áhuga á starfinu, t. d. að þeir fengju það, sem aflaðist og rík- ið borgaði kostnaðinn. S. Ó. S. Tilkynning til s jómanna, útvegsmanna og verkstæða, sem annast nýsmíði og viðgerðir á skipum Að gefnu tilefni skal athygli vakin á því, að yður er skylt samkvæmt lögum nr. 52/1970 að tilkynna Siglingamálastofnun rikisins eða umboðs- manni hennar, ef um er að ræða viðgerð eða breytingu, sem komið getur til mála að varði öryggi skipsins. Itomið hefur í ljós að gerðar hafa verið ýmsar breytingar, sem rýrt hafa sjóhæfni skipa verulega. Sumstaðar er um svo alvarlega aðgerð að ræða, að ekki verður komist hjá að taka fastar á þessum málum en verið hefur. Þá viljum við brýna fyrir mönnum að fylgjast vel með öllum blökkum og rúllum, sem tog- og snurpuvírar liggja í, alvarleg slys hafa orðið vegna veikra festinga og vítaverðs frágangs á dekk-rúllum. Áður hefur verið sent umburðarbréf nr. 49, frá Skipaskoðunarstjóra, til skipasmíðastöðva og verkstæða, sem annast viðgerðir á skipum, þar sem þeim er bent á skyldu verktaka. Ósk okkar er að takast megi sem bezt samstarf með framangreindum aðilum og Kannsóknanefnd sjóslysa. Með góðu samstarfi er hægt að koma í veg fyrir mörg slys og það er vilji okkar allra. Hafið samband við starfsmann Sjóslysanefndar um það sem ykkur finnst ábótavant. F. h. Rannsóknanefndar sjóslysa. Páll Guðmundsson. VÍKINGUR S6

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.