Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1972, Blaðsíða 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1972, Blaðsíða 40
ur. Getur þá verið hollt að reyna að sjá sjálfan sig með annara aug- reglum, sem fylgt er á skipum. Regl- urnar um frama og upphefð þar, eru beinar og engan veginn torskildar, um, einmitt viðkomandi þeim starfs- og kröfurnar til einstaklingsins hverjum manni augljósar. Með hlið- sjón af fyrri störfum, getur hver einstakur dæmt um embætti sitt, og hvernig honum tekst að rækja það. Sú hlið á málinu er því í lagi. Við það að fullkomna sig til á- byrgðarmeira starfs, er fyrirmyndin ávallt við hendina, með öðrum orð- um: maður hefur kennarann ávallt fyrir framan sig, gildir þar einu, hvort af honum má læra það, sem ber að gera, eða það sem ber ógert að láta, hvort tveggja er jafn mikilvægt. Hvort er um að ræða að bæta um eigin framkomu, eða að fullkomna þekkingu sína fyrir ábyrgðarmeira starf, er það nú á tímum oftlega næsta auðvelt, með því að auka að einhverju marki tækniþekkingu sína. En því má ekki gleyma, að yfir- mannsstarf útheimtir stjórnunar- hæfni, og stjómun er að öðrum þræði kennarastarf, sem sérhver yfirmaður ber ábyrgð á. Verður það víðfeðmara og snertir fleira og fleira fólk eftir því sem hærra kemur í metorðastig- ann. Þessa ábyrgð tekst maður á hendur og viðurkennir á þeirri stundu, sem hann tekur að sér nýtt embætti. Það viðhorf að segja jafnan, þetta vita ekki aðrir en ég, „jeg alene vite“, og þetta gera ekki aðrir betur en ég, „dette kan ég alene klare best“, hefur engum verið gagnleg, og verður það aldrei. 1 fyrsta lagi er alls ekki víst, að maður sé sjálfur hæfastur til þessa eða hins, og í öðru lagi er það oftlega svo, að aðrir hafa betra af, eða hentar betur að framkvæma það sem um er að ræða. Þar að auki mun það oftastnær vera til léttis fyrir stjórnandann, svo að hann fær þá aðstöðu til að framkvæma sjálfur önnur verk, sem í rauninni eru ekki eins „aðkallandi". Það má aldrei gleyma því, að flestir vaxa með verk- efnum sínum og aukinni ábyrgð, og það er skylda hvers stjórnanda að gera sitt bezta til að svo megi verða. Ætti ég að draga ályktun af fram- ansögðu, yrði hún eitthvað á þessa leið: Til hinna ungu: Verið framtak- samir — og til hinna eldri: Leyfið þeim ungu að reyna sig! Það eru eflaust til mörg sorgleg dæmi um að þetta hefir ekki verið gert, og ekki færri góð dæmi um að þetta sé rétt, og einasta leiðin ti! að ná góðum árangri. Sérstaklega er auðvelt að fram- kvæma þetta á skipum því að: í fyrsta lagi — eru þar fyrir hendi skipulagðar reglur um upphefð og aldursfestu. f öðru lagi — náið samstarf og nauðsyn einlægrar og góðrar sam- vinnu útilokar misklíð á þessum vett- vangi. f þriðja lagi — og ekki því veiga- minnsta, til sjós hafa menn bezta yfir- sýn um hlutina, og er það nauðsyn- legt til góðs árangurs, þar sem allir eru í sama bátnum. Þýtt úr „Norsk maskin- tidende“ 8. 1971. Frá Japan Stærsta skip í heimi, „Nisseki Maru“, 372,400 T. dw., er um þessar mundir í reynsluferð frá Kur-skipa- smiðjunni til Íshikawajima-Harima, og verður afhent eigendunum Tokyo Tanker Co., Ltd. síðar í þessum mán- uði eða í byrjun þess næsta. Jómfrú ferðin frá Japan til Persaflóans hefst um 10. september með seglfestu, og liggur leiðin um Malakka-sundið. Á heimleiðinni til Japan verður skip- ið hinsvegar að fara aðra leið, þ. e. um Lambok-sundið, því að hlaðið ristir það um 27 metra. Áætlað er að „Nisseki Maru“ fai’i níu ferðir á ári með olíu frá Pera- flóanum til „Central Terminal Syst- em í Kiire,“ Japan. Þetta mikla skip var tilbúið til af- hendingar 2 mánuðum fyrr en ákveð- ið var samkvæmt smíðasamningi, og voru þá liðnir 10 mánuðir frá því að kjölur þess var lagður. Samkvæmt upplýsingum frá skipasmiðjunni tókst þetta með því að viðhafa nýja smíðatækni og umbúnað. Skipið er 347 m á lengd, 54,5 m á breidd og 35 m á dýpt. Aðalvélin er eimtúrbína 40,000 virk hestöfl og ganghraði skipsins 14,5 sjómílur full hlaðið. Auk þess að vera stærsta skip í heimi, er það fyrsta skip sinnar teg- undar í Japan, sem hefir konur með- al skipverja. Tíu konur starfa þar við framreiðslu og skrifstofustörf. Eftir „Norsk maskiwi- tidende“ 9. 1971. Fjörur í Vestur- Skaftafellssýslu eftir Gunnar Magnússon f rá Reynisdal. Allt frá því er land vort byggð- ist, hafa fjörurnar með strönd- um þess verið mikilvægar í lífs- baráttunni, og einn af hyrningar- steinum þess að landið væri byggilegt. Á fjörurnar rak trjá- við, sem notaður var til húsa- gerðar og skipa um aldaraðir, mismunandi eftir því hvernig strendurnar voru lagaðar, þá höfðu og hafstraumar mikilvæg áhrif á hvar mest rak á hverjum tíma. Strandir, við vestanverðan Húnaflóa, hafa löngum verið rekasælar, bæði á við og annað. Þá voru hvalrekar tíðir þar fyrr á öldum. Þorvaldur Thoroddsen, ferð- aðist um landið skömmu fyrir síðustu aldamót, í ferðabókum hans er þess getið, að víða í Strandasýslu væru hrannir af trjávið, sem aldrei hafi verið nýttur, og sprekuð uppi og orðið vallgi'óin sumstaðar á inn- ströndum. Þá voru farnar viðarferðir á strandir af búendum við austan verðan Húnaflóa og af Skaga. Og enn rekur á ,,Ströndum“ að því er fregnir herma, en nú er reka- viðurinn mestmegnis klofinn niður í girðingastólpa og seldur bændum í nálægum héruðum. En þessi stutti þáttur átti nú ekki að vera um Strandir né önn- ur fjarlæg héruð. Ég ætlaði að rita stutt yfirlit um fjörur í Vest- ur-Skaftafellssýslu og skal nú hafin upptalning á þeim og byrj- að við Jökulsá á Sólheimasandi, sem skilur sýslur. I. Dyrhólahreppsfjörur. 1. Sólheimaf jara hin ytri. 2. Sólheimafjara hin eystri. 3. Péturseyjarfjara. 4. Hvolsfjara. 40 VlKINGUK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.