Náttúrufræðingurinn - 1969, Page 42
84
NÁTTÚ RU F RÆ ÐINGURINN
3. mynd. 8 jarðvegssnið á Haukadalsheiði. Súlurnar til vinstri sýna jarðvegs-
sniðin, en línuritið til hægri sýnir þykknunarhraða áfoksins. — 8 soil profiles
on Haukadalsheidi. The columns to the left show ihe soil profiles and the
diagrams tu the riglit show ihe thickening rate of the loessial soil.
en þeim fylgir sá annmarki, að þan sýna óeðlilega þykknun áfoks-
jarðvegsins í efsta hluta sniðanna (S. Þórarinsson 1960). Var því
reynt að sneiða sem mest lijá þeim við val mælistaða. Samt varð
ekki komizt hjá að nota rofbörðin sem mælistaði á efri hluta rann-
sóknarsvæðisins, því að þar er ekki um annan áfoksjarðveg að
ræða. Reynt var að fylgja eftirfarandi reglum við val annarra mæli-
staða eftir því, sem aðstæður leyfðu: Leitað var eftir nýlegum vatns-
farvegum í áfoksjarðveginum, þar sem tímabundið vatnsrennsli
hafði nýlega grafið undan rofbarðinu (mynd I a). Landið varð að
vera hallalítið og vindrofsbörðin helzt í nokkur hundruð metra
fjarlægð í aðalvindrofsáttina. Þegar staðurinn hafði verið valinn,
voru grafnar 3 rásir inn í rofbarðið með nokkru millibili. Rásirn-
ar voru grafnar það langt inn í barðið, að tryggt var að jarðsigsins
gætti ekki lengur. Venjulega reyndist nægilegt að grafa 20—50 cm