Náttúrufræðingurinn - 1969, Page 62
104 NÁTTÚ RUFRÆÐINGU RINN
rofbarðsins liggi ávallt hærra en svo, að hárpípukraftur áfoksins
megni að flytja jarðvatnið upp til gróðursins. 10. myncf skýrir,
hvernig sú þróun gengur fyrir sig. Jarðvegseyðingin nær þó aðeins
niður að jarðvatnsborði, svo að mórinn í mýrinni verður eftir,
nema Jwí aðeins að jarðvatnsstaðan lækki vegna jarðvegseyðingar-
innar, eins og stundum vill til. Slíkar móleifar finnast allvíða á
Haukadalsheiðinni og er Stóra-Mýri gleggsta dæmið Jiar um.
Eðli jarðvegseyðingarinnar á hverjum stað fer mjög eftir legu
jarðvatnsborðsins, en |)að er aftur á móti háð vatnsleiðni undirlags
áfoksjarðvegsins. Með tilliti til Jiessa má skjpta jarðvegseyðingunni
í ])rjá flokka:
1. Vatnsrof, Jiar sem undirlagið er tiltölulega vatnsþétt, svo að
jarðvatnsborðið liggur að jafnaði rétt undir eða upp f áfoksjarð-
veginum.
2. Samspil vatnsrofs og vindrofs, þar sem jarðvatnsborðið er
ýmist langt undir áfoksjarðveginum eða nær upp í hann.
3. Vindrof, Jiar sem jarðvatnsborðið liggur ávallt langt undir
áfoksjarðveginum.
Skal nú vikið nokkru nánar að hverjum flokk um sig.
Hlutdeild vatnsrofsins í eyðingu áfoksjarðvegsins er langt frá því
að vera nægilega rannsökuð, til Jiess að unnt sé að gera henni nokk-
ur viðhlítandi sk.il. Rennandi vatn þarf mjög lítinn straumhraða
til að rjúfa áfoksjarðveginn, og enn minni straumhraða Jiarf til
þess að hann flytjist lnirtu með rennandi vatni. Fínni hluti áfoks-
ins flyzt oft fremur sem leðjustraumur (mud flow) heldur en sem
venjulegur aurburður. Áfoksjarðvegurinn sjálfur er Jiað lekur, að
úrkomu- og leysingarvatnið sígur að langmestu leyti niður í gegn-
um hann. Jarðvatnið verður Jiá að renna í gegnum botnlög áfoks-
jarðvegsins, ef undirlag hans er nokkuð vatnsþéttur berggrunnur
eða jökulruðningur. Slíkt jarðvatnsrennsli fær útrás við vatnsfar-
vegi eða roibörð og veldur þá oft jarðvegsroíi á þann hátt, að botn-
lög áfoksins fljóta fram sem leðjustraumur. Þannig myndast oft
langir skurðir í áfoksjarðveginn (mynd I a), og einnig geta stærri
svæði eyðzt á þann hátt sem heild, ýmist smátt og smátt eða sem
stórar jarðvegsskriður. Vegsummerki slíkrar jarðvegseyðingar má
víða sjá í hlíðum, hallandi landi og ekki hvað sízt meðfram þjóð-
vegum landsins. Annar þáttur vatnsrofsins er sá, að vatn Jiað, sem
rennur burt á yfirborðinu, grefur rásir í áfoksjarðveginn, sérstak-