Náttúrufræðingurinn - 1969, Side 71
113
NÁTTÚRUFRÆÐINGU RINN
Ekki er unnt að sjá af þeim rannsóknum, sem hér liggja fyrir
hendi, hver sé þáttur loftslagskólnunar og hver sé þáttur öskugos-
anna í jarðvegseyðingunni. Þó tel ég, að fullyrða megi, að hvoru
tveggja séu þar mikilvirk. Ekki er heldur hægt að sjá af þeim,
hvort hlýnandi loftslag á þessari öld hafi dregið úr jarðvegseyðing-
unni. Það getur þó talizt líklegt, þar sem engin eldfjallaaska hefur
fallið á þetta svæði eða í nágrenni þess síðan 1766. Þar á móti
vegur sú staðreynd, að búfjáreign landsmanna hefur aldrei verið
meiri en nú.
Enn er þó ótalið eitt atriði, sem mun hafa reynzt afdrifaríkt
fyrir jarðvegseyðinguna á Haukadalsheiði, sérstaklega á þessari ökl
og allt fram til dagsins í dag, en það eru aurarnir við Sandvatn
(mynd II a). Sandvatnsaurarnir munu að mestu liafa myndazt á
síðustu öldum og ef til vill að langmestu leyti í jökulhlaupum
þeim, sem komið liafa frá Hagavatni. Stærstu hlaupin vorn árin
1929 og 1939 (S. Þórarinsson 1939). Saga Hagavatnshlaupanna verð-
ur ekki rakin hér, enda hef ég gert henni skil annars staðar (G.
Sigbjarnarson 1967), en áhrif þeirra á jarðvegseyðinguna hafa orðið
mikil, bæði bein og óbein. Hlaupin hafa brotið eitthvert gróður-
lendi niður meðfram Árbrandsá, en sandeyrar þær, sem hlaupin
byggðu upp við Sandvatn, hafa þó reynzt drjúgum skaðlegri, því
að þær hafa orðið uppspretta sandfoks, sem roföflin hafa síðan tekið
í þjónustu sína við eyðingarstarfið.
Að lokum vil ég geta hér nokkurra útreikninga, sem ég hef gert
á magni jarðvegseyðingarinnar á Haukadalsheiði eftir landnámið.
Stærð alls rannsóknarsvæðis míns er um 250 km2. Við landnám
munu unt 230 km2 liafa verið gróið land, þakið rúntlega eins metra
þykku lagi af áfoksjarðvegi. Upphaflegur áfoksjarðvegur þekur nú
um 40 km2 af þessu svæði, en ný jarðvegsmyndun hefur orðið á
um 5 km2. Heildar jarðvegseyðingin hefur því verið um 270 millj.
m3, en það samsvarar því, að meðaleyðingin hafi verið um 245 þús.
m3 á ári. Um 50 millj. m3 hafa þó ekki horfið af svæðinu, heldur
liafa þeir fokið yl'ir á gróðursvæðin, sem eftir eru, en það samsvarar
um 45 þús. m3 á ári. Vatnið og vindurinn ern því búin að flytja
burt af svæðinu um 220 millj. m3 eða um 200 þús. m3 að meðal-
tali á ári. Væri þeirri jarðvegseyðingu jafnt dreift um allt rann-
sóknarsvæðið, samsvarar hún því, að á hverju ári hefðu 800 m3
liorfið af hverjum ferkílómetra. Tölur þessar gefa nokkra hugmynd