Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1969, Side 82

Náttúrufræðingurinn - 1969, Side 82
124 NÁTTÚ RU FRÆÐINGURINN og geta geymzt allt árið. Það verður að mala þau vel og gengur það greiðlegast ef þau eru þurrkuð fyrst. Stundum eru þau steytt sundur eftir að hafa verið soðin í vatni. Þá verða þau sæt á bragðið. Matur, sem úr þeim er gerður, er einnig sætur, og þótt þessi rauðu korn séu dálítið barkandi, eru þau samt hollur og góður matur. Brauð úr þeim er dökkt á litinn, en það þarf að blanda það méli, svo að það tolli saman.“ Þannig hljóðar frásögn Eggerts og Bjarna, en þeir ferðuðust um Island á árunum 1752—1757, eða fyrir rúmum tveimur öldum. — Kornsúran er harðgerð jurt og ekki er hún vönd að jarðvegi. Hún vex nær alls staðar um land allt í flestum eða öllum gróður- lendum. I Jötunheimum í Noregi er hún fundin í 2280 m hæð yíir sjó. (Hve hátt yfir sjó hafið þið fundið hana hér á landi?) Korn- súran vex mjög víða í norðlægum löndum bæði austan hafs og vestan, t. d. algeng á Grænlandi. Hún vex í fjöllum Mið- og Suður- Evrópu og í Kákasus og víða í fjöllum Asíu og Norður-Ameríku. Ingimar Óskarsson: r Rætt um fund tveggja skeldýrategunda við Island Á síðastliðnum 30 árum hefur 2f tegund bætzt í hóp íslenzkra sæskeldýra. Mér vitanlega hafði engra af þessum tegundum verið getið héðan áður. Nú hafa enn tvær tegundir komið fram á sjónar- sviðið, en þær eru Patella vulgata, mararhetta og Lucinoma (Luc- ina) borealis, kringluskel. Fyrrnefndrar tegundar er getið án númers og henni lýst í Skeldýrafánu íslands 11, sem kom út 1962, án fullyrðingar um tilveru hennar í íslenzkum sjó. í bók þessari segir svo um mararhettuna: „Tvö fullkomin eintök rnerkt ísland, og nokkur dauð eintök af tegundinni eru til á dýrasafninu í Kaupmannahöfn. En þar sem síðari tíma rannsóknir hafa ekki Jeitt í ljós, að tegundin lifi hér við land verður eins og stendur að telja mararhettuna vafasama sem íslenzkt skeldýr."

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.