Náttúrufræðingurinn - 1969, Qupperneq 85
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
127
á víðirunnana. Eftir frostnætur tekur að bera mikið á hinum rauðu
fitum, en í votviðrum öllu meira á fölgulum og brúnum. Hvernig
stendur á öllum þessunr litbrigðum?
Haustlitir eiga rót sína að rekja til efnafræðilegra orsaka. Á sumr-
in hylur blaðgrænan hina gulu karótínliti blaðanna. Þegar hitinn
lækkar á haustin, hverfur blaðgrænuliturinn og gulu litirnir koma
í ljós. Þessi litaskipti stuðla að því að spara köfnunarefni plantn-
anna, það færist inn í stofn og greinar fyrir lauffallið og geymist
til vorsins. En mörg blöð fá (auk gulu litanna) rauðan eða rauð-
fjólubláan blæ. Þetta orsaka litarefni í frumusafanum. Það eru
sams konar litarefni og finnast í rauðum og bláum blómum og
rauðblöðuðum afbrigðum sumra trjáa, t. d. blóð-beykis o. fl. Stór,
alrauð blóðbeykitré vaxa t. d. í Danmörku, og setja mjög sérkenni-
legan svip á margan garðinn. Tré eða runnar með fagra haustliti
eru mikil garðaprýði. Auk áðurnefndra tegunda, bera t. d. sumar
tegundir clvergmispils (Cotoneaster) fagurrautt haustlauf. Rauðu
reyniberin eru alkunn. Úti á víðavangi sjást furðulega fjölbreyttir
litir. Hvítir fífuskúfar í mýrum fara vel við rautt brokið. Á gráurn
melum skarta hvít svifhár holtasóleyjarinnar rétt við móleit holtin,
rauðar lynglautir og blágráar ár og læki.
Á túnum skiptast á grænir og gráir blettir og sums staðar dökk-
grænar hafraskákir. Þetta eru aðeins nokkur dæmi, litbrigðin eru
óendanlega margvísleg. Lítið út í garðana, eða á móana, hraunin
og fjallahlíðarnar, „þúsundlita skóginn" og reynið, hve marga liti
þið getið greint. Duglegir kennarar ættu að fara með hópinn sinn
út fyrir skólann og vekja athygli nemenda á fegurð og fjölbreytni
haustlitanna. Skyldi það ekki vera á við heimsókn á æði góða mál-
verkasýningu? „Haustlita-sinfóníu" Reykjanesskagans er við brugð-
ið. Sums staðar loga líka heilar fjallshlíðar í litaskrúði haustsins.
Sérhver árstíð hefur sína fegurð til að bera.
Lítum betur á litina og orsakir þeirra. Allir kannast við hinn
græna lit blaðgrænunnar, sem er undirstaða lífsins á jörðunni. En
í frumum jurta, trjáa og runna eru einnig gulir, appelsínugulir og
rauðir litir mjög algengir, en oft huldir af blaðgrænunni þangað
til á haustin. Guln haustlitirnir, sem koma í ljós fyrir lauffallið,
eru karotínlitir, sams konar og þeir, sem gera gulrætur gulrauðar.
Hinn rauði litur deyjandi blaða er af öðrum rótum runninn. Við
starfsemi blaðgrænukornanna myndast sykur í blöðunum og berst