Samvinnan - 01.03.1928, Side 11
SAMVINNAN
5
firði í sumar. Kaupfélag Héraðsbúa á það og gekst Þor-
steinn Jónsson kaupstjóri þar mest fyrir framkvæmdum.
Svo þarf að halda fram stefnunni, sem
Eitt kælihús byrjað er. Kælihúsum þarf að fjölga við
á ári. aðalútflutningshafnir landsins. Minna en
eitt á ári má varla byggja fyrst um sinn.
Næstu húsin ættu að líkindum að koma á hinum stóru
kjöthöfnum norðanlands, Húsavík, Sauðarkróki og Blöndu-
ós, og síðan við hinar minni hafnir eftir því sem þörfin
krefst, og reynslan kennir.
Hér hefir verið á ferð í haust trúnaðar-
Ensku maður ensku heildsölunnar, Mr. W. East-
kaupfélögin og wood frá Manchester, til að kynna sér
kælda kjötið. skilyrði fyrir kjötverslun hér á landi. Kom
hann fyrst austan um land til Akureyran
og hélt þaðan til Reykjavíkur og síðan heim. För hans var
undirbúin af framkvæmdarstjórum Sambandsins, Guðm.
Vilhjálmssyni og Jóni Ámasyni. Hver sem árangurinn
kann að verða, þá er enginn vafi á að hér er rétt spor
stigið. Framtíðarkjötmarkaður Islendinga hlýtur að verða
í Englandi. Og stærsta neytendafyrirtækið í Englandi eru
ensku kaupfélögin. Að komast í beint samband við þau
með matvælaframleiðslu landsins og vinna sér þar traust
og álit, er áreiðanlega góð framkvæmd í íslenskum versl-
unarmálum.
Enginn skyldi ætla, að þegar samvinnufélög hefja
skifti landa milli, þá nái félagshyggjan svo langt, að úr
verði líknarstarfsemi. íslendingar myndu líka fráleitt óska
þess, þótt hægt væri. Kaupfélögin eru ekki líknarfélög,
hvorki utanlands né innan.
Nú er ákveðið, að samvinnumenn í Eyja-
Mjólkurbú firði efni til smjörgerðarfélags, hins
Eyfirðinga. stærsta, sem enn hefir verið stofnað hér
á landi. Njóta Eyfirðingar þess að hafa
gott kaupfélag, því að stjóm þess hefir undirbúið smjör-
gerðarmálið með mikilli fyrirhyggju. Sendu Eyfirðingar
ungan og efnilegan mann til Danmerkur og hefir hann