Samvinnan - 01.03.1928, Side 38
32
SAMVINNAN
aukinni ræktun landsins, og í öðru lagi, þá tímir hann
ekki að hann sjálfur og efnalegir jafningjar hans borgi
þá skatta, sem þeim ber að borga hlutfallslega við fátækl-
inga landsins. En eg býst við, að hæstv. forsætisráðh. sé
það ljóst, að það muni reynast erfitt að fá tollmálalög-
gjafa Englands til þess að leggja samsvarandi byrðar á
öreigana eins og hér er gert.
Út af ræðu hæstv. atvinnumálaráðh. vil eg geta þess,
að hann virðist bera óþarflega mikla umhyggju fyrir hv.
1. þm. N.-M. (H. Stef.), og meiri en sá þm. gerir kröfu
til. Aðaluppistaðan í ræðu hans var sú, að reyna að sann-
færa hv. 1. þm. N.-M. um það, að hann gæti ómögulega
verið með þessari till., af því að hún væri eins og frv.
það, sem hann bar fram. Hv. 1. þm. N.-M. hefir látið í
ljós aðrar skoðanir á sumum atriðum þessa máls; hann
hefir kosið að ýta því áfram, án þess að koma að hinum
veika punkti, hvar eigi að taka peningana, hverjir eigi að
borga. En áður en lýkur, kemur að skuldadögunum og
einhversstaðar verður að taka peningana, og hér í þessari
till. er stungið upp á leið til að afla fjárins, og sú leið
virðist ekki ósanngjöm.
Þá vildi hæstv. atvinnumálaráðh. láta vísa þessu máli
til stjómarinnar. Mér þykir það nú næsta undarlegt, er
stjórnin stingur sjálf upp á því, að gera sig að líkkistu.
Það sæmir betur öðrum, að koma á stjómina þeim óþæg-
indum, sem fylgir því, að drepa góð mál, en hitt er of-
rausn, að biðjast eftir slíku. Eg ber kvíðboga fyrir því að
hæstv. atvinnumálaráðh. sé líkt farið og hæstv. forsætis-
ráðh., að hann sé ekki mjög hrifinn af þessu máli, þegar
kemur til fjárútlátanna við að rækta land og fjölga heim-
ilum. Hann er kannske með þessu nú fyrir kosningamar,
en það verður gaman að sjá hönd hans réttast upp, mál-
inu til stuðnings, þegar greitt verður atkvæði um tekju-
auka þann, sem með þarf.
Hæstv. atvinnumálaráðh. sagði, að það væri of bind-
andi, ef einn eða fleiri liðir þessarar till. yrðu samþyktir.
Þessu verð eg að mótmæla. Ef þessir liðir verða sam-