Samvinnan - 01.03.1928, Qupperneq 57
SAMVINNAN
51
"'Æ
inu svefnherbergi. Risið er mjög hátt og loftið notast
engu síður í þeim íbúðum, er snúa hlið en ekki gafli fram
að götu. Kostirnir við slíka sambyggingu eru auðvitað
margir. Húsin verða ódýrari, þegar þau eru bygð þannig
stafn við stafn, mörg saman, og öll, ef svo má segja,
steypt í sama móti. Auk þess eru íbúðirnar vitanlega
hlýrri, þegar smáhúsin eru áföst og ekki dreifð. Þetta sá
bankastjómin, og þetta fordæmi vildi hún gefa öðrum, er
byggja vildu. Gátu þar komið til greina byggingar, er
bæjarfélög reistu, eða byggingar atvinnurekenda handa
verkafólki sínu, og að síðustu félags- eða samvinnubygg-
ingar. En því miður hefir þessi ágæta fyrirmynd ekki
verið notuð af neinum.
Nokkrir ágallar virðast vera á fyrirkomulagi þessara
bygginga og þarf síst að undrast það, þar sem um frum-
smíð var að ræða. Húsin eru tiltölulega erfið, þegar bygð
eru á þrem hæðum. Risið er nokkuð hátt, en notast ekki
að því skapi vel, því að ónothæft rúm verður út við
sperrukverkarnar. Að síðustu kemur sá ágallinn sem erf-
iðast er við að gera á smáhýsum hér á landi: kjallarinn
verður hlutfallslega alt of dýr. Vegna frostanna þarf kjall-
ara undir flestum húsum, þar sem t. d. í Englandi og
Danmörku má byggja smáhús á tiltölulega mjög ódýrum
grunnmúr. Þegar búið er á annað borð að gera kjall-
arann vandaðan, vill fólk nota hann sem mest, eins og von
er til. Verður það stundum til þess, að eldhúsið er sett í
kjallarann, en það er einmitt það, sem síst ætti að gera.
Á þann hátt er eitt af lélegri herbergjum heimilisins ætl-
að fyrir mestu inniverkin. Svo varð og í bankahúsunum,
að sumir af hinum nýju eigendum fluttu eldhúsið af aðal-
hæð í kjallara, til að nota rúmið þar út í æsar.
Sennilega væri hinn mesti hagur að fylgja í bæjunum
aðalhugmynd Guðjóns Samúelssonar um sambygð smá-
hús, með þeim tveim breytingum, að freista að komast
af með miklu ódýrari kjallara, en hafa hinsvegar port
nokkurt á húsinu, og risið jafnframt lægra. Með þeim
hætti myndi loftrúmið verða að miklu meira gagni og
4*