Samvinnan - 01.03.1928, Page 64
58
SAMVINNAN
voru látin þangað jafnskjótt og þau gátu orðið að ein-
hverju liði. Þau byrjuðu að vinna 8—9 ára gömul, og oft
voru 6—7 ára börn send þangað, og jafnvel 5 ára gömul.
Þegar unnið var nótt og dag, var börnunum ekki hlíft.
Áreiðanlegar sagnir geta þess, að böm hafi verið orðin
svo örmagna, að það varð að mata þau, og að þeim hafi
verið haldið vakandi með bareflum. Sum áttu engan
vandamann að, er sæi um þau að vinnunni lokinni, og voru
jafnvel heimilislaus. Þegar móðirin vann sjálf fram á
nætur, gat hún og heimilið ekki veitt bömunum þá að-
hlynningu og ánægju, sem var nauðsynleg fyrir gott upp-
eldi æskulýðsins. Börn, er ólust upp á sveit, voru send í
hópum í verksmiðjumar.Sveitastjórnirnar leigðu þau iðju-
höldunum. Líkamskröftum þeirra var ofboðið með vinnu,
sem var þeim um megn. Fram á nætur urðu þau að standa
við vinnu sína, föl og yfirkomin af þreytu, í óhollu and-
rúmslofti og lélegum vinnustofum. Aðbúnaður til fæðis og
klæða fór einatt eftir þessu. Átakanlegastar eru þó lýs-
ingamar á meðferð þeirra barna, er unnu í námunum.
Börn verkalýðsins ólu þannig aldur sinn að mestu leyti í
verksmiðjunum. Þau fóru á mis við fræðslu, umhyggju
og aga. Fulltíða menn báru æfilangt menjar örbirgðar-
innar, þreytunnar og lífsbaráttunnar í æsku. Starfskraft-
arnir vom slitnir fyrir tímann, mörg ár fyrir aldur fram.
Enginn veit tölu þeirra bama og unglinga, er örmögnuð-
ust við vinnuna í vinnustofum og námum eða dóu af af-
leiðingum hennar. Ábyggilegar heimildir fullyrða, að
barnadauðinn hafi verið hræðilegur.
Heilbrigðisástandið í verksmiðjunum var ömurlegt.
Lífi og heilsu manna, einkum þó kvenna og bama, var
hætta búin. Dag og nótt var unnið í þröngum vinnustof-
um, fullum af ryki, ólofti og reyk og oft úr ýmsum óholl-
um hráefnum fyrir heilsuna. Slysfarir af hættulegum vél-
um voru tíðar. Hreinlætið varð ekki bætt, nema með aukn-
um útgjöldum. Iðjuhöldarnir hugsuðu um það fyrst og
fremst, að draga úr framleiðslukostnaðinum á öllum svið-
um. Lífi og heilsu verkalýðsins var enginn gaumur gef-