Samvinnan - 01.03.1928, Blaðsíða 68
62
S A M V I N N A N
dygga félagsmenn, er ekki runnu, þá er á hólminn var
komið, eins og mörgum verður, þegar pyngjan er annars-
vegar. „Við sáum það“, sagði kaupfélagsstjórinn við mig,
„að ef við ekki allir hjálpuðumst að með að lyfta byrð-
inni af herðum félagsins, var úti um starfsemi þess og
um leið útséð um, að nokkurt öflugt félag gæti starfað á
þessu svæði, ef félagsmenn ekki sýndu það í verki, að
þeir væru félagsmenn, en ekki augnaþjónar stundar-
hagnaðar. 0g við unnum sigur“. Og nú er J. A. F. eitt
stærsta og öflugasta heildsölu samvinnufélag er verslar
með skepnufóður. Eg kom í vörugeymsluhús og verk-
smiðjur F. D. B. (= Samband danskra kaupfélaga) bæði
í Árósum og Álaborg. Eru það gríðarstórar b'yggingar
og hinar vönduðustu, og alt er þetta bygt fyrir sparaö
fé, er bændur af hygni sinni hafa lagt í samvinnufyrir-
tæki í staðinn fyrir að láta það hverfa í botnlausa hít
annara milliliða.
Eins og eg drap á áðan, var eg við afgreiðslu og inn-
anbúðarstörf í kaupfélögum þeim, er eg heimsótti í Stöv-
ring, Onsild og Viby. Auk þess heimsótti eg mörg fleiri fé-
lög, og alstaðar, í hverju einasta smáþorpi á Jótlandi, er
kaupfélag.
Stjórn og starfsemi félaganna er að mörgu leyti ólík
því, sem hér er. Stjórn félaganna skipa: formaður, er
annast alla endurskoðun á reikningum, ákveður útsölu-
verð á vörum o. þ. 1.; bókhaldari, er annast alla bókfærslu
og reikningshald félagsins, og að síðustu kaupfélagsstjór-
inn. Á honum hvíla þær skyldur,að sjá um alla vörupönt-
un og ennfremur, að ekkert skorti af því tæi, en enga
bókfærslu annast hann. Þannig er hans verkahringur ekki
þrengri en kaupfélagsstjóra hér á landi. Hin strangasta
regla er með mánaðar skilagrein í félögunum, enda er
það nauðsynlegt, því þá er auðveldara að sjá, hvert
stefnir með hag félagsins. Mjög er áberandi hinn framúr-
skarandi þrifnaður í sölubúðum félaganna. í þorpunum í
sveitum eru búðir opnaðar kl. 7 á morgnana, og er opið
til 7 að kvöldi alla daga, nema föstudaga til 8 og laugar-