Samvinnan - 01.03.1928, Side 94
SAMVINNAN
yrðu bættar, þar sem þörfin er brýnust sakir erfiðra stað-
hátta. Hann hefir beitt sér á móti aukinni og bættri al-
þýðumentun til sveita. Hann virðist vera því mótfallinn,
að sveitamenn fái ódýr ræktunarlán. Og' sumir íhaldspost-
ulamir telja þá framið „metnaðarmorð" á bændum, ef
þeim væri hjálpað um eitthvað töluvert ódýraii lán, til
rækta jörðina og yfirleitt til þess að gera hana byggilega
og aðlaðandi fyrir komandi kynslóðir, en venjulega eru
veitt til áhættusamra fyrirtækja. Og alveg virðast íhalds-
menn vera á móti býlafjölgun í sveitum landsins. íhalds-
menn eru yfirleitt mótfallnir samvinnuverslun, sjálfs-
bjargarsamtökum sveitabænda, og hafa sumir þeirra
skrifað einhverjar hinar ófyrirleitnustu árásar- og níð-
greinar um samvinnufélögin, sem enn hafa þekst hér á
landi. Formaður íhaldsflokksins, núverandi forsætisráð-
hema Jón Þorláksson, með marga íhaldsþingmenn aftan
í sér, berst mjög harkalega og eindregið með gengishækk-
uninni, þótt hann hljóti að vita, hversu ranglátur og lítt
viðráðanlegur skattur hún er fyrir sveitabændur og yfir-
leitt fyrir alt atvinnulíf þjóðarinnar. Þá vilja Ihaldsmenn
margir, að hinum fátækari borgurum landsins sé íþyngt
með ranglátum neyslusköttum (tollum og öðrum nefskött-
um) en að beinir skattar verði helst lækkaðir, af því að
þeir koma venjulega harðast niður á þá, sem eru ríkastir,
eins og líka vera ber.
Lengi mætti telja syndir íhaldsmanna. En hér skal
nú staðar numið. Aðeins get jeg ekki látið hjá líða, að
lýsa yfir undrun minni á því, hvað sveitamönnum er enn
gjamt til þess, alt of mörgum, að fylla flokk íhaldsins, og
með því móti að skapa íhaldsflokknum á Alþingi betri að-
stöðu en ella til þess að vinna á móti hagsmuna- og vel-
ferðarmálefnum sveitamanna. „Sér grefur gröf, þótt
sjálfur grafi“ má segja þar. Og sorglegt er, að sveita-
menn skuli ekki betur þekkja sinn vitj unartíma en kemur
fram í íhaldsmeðhaldi þeirra, sumra.
Oft hefir verið þörf á að losa sig við Ihaldið, en nú
er það brýn nauðsyn. Við næstu almennar kosningar til