Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1896, Page 16

Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1896, Page 16
Geta kaupfjelög komið í stað kaupmanna? (Úr „Ófeig'i11). 1 Úrlausn þessarar spurningar er eitt af kinum stærri atriðum, sem kaupfjelagsmönnum og kaupmannaliðum hcfir ekki getað komið saman um. Það má vel vera, að um þetta atriði kafi verið einna mest hugsað og talað hér í Suður-Þingeyjarsýslu. Annar- staðar á landinú hafa kaupfélagsmenn, að ég hygg, al- mennt talsverð viðskifti við kaupmenn, og þar er eðlilegt að spurning þessi sé naumast komin á dagskrá enn þá. Þar er hið almenna þetta: Kaupfélagsménn panta ekki nema nokkurn hluta af nauðsynjum sínum, að eins þær vörur, sem þeir telja mestan hag við að fá í pöntun, og láta aftur á móti að eins það af íslenzkum vörum, sem þeir álíta meinlegast að gangi í gegnum reikning þeirra hjá kaupmanninum. Þannig mun þessu vera varið í kaupfélagi Svalberðinga og Eyfirðinga og þó sér í lagi í kaupfélagi Skagfirðinga; þar hafa kaupfélagsmenn stóra reikninga „í búðinni“. Til kaupmannsins láta menn allmikið af ull, reka margt fé á blóðvöllinn að haustinu til, og fái þeir peninga heim til sín að vetrinum til frá umboðsmanni fé- lagsins erlendis, þegar kaupfélagsverzlunin hefir gengið vel, eru þær krónur, að sögn, von bráðar fiestar komnarískáp kaupmannsins. 1 félögum þessum mun því lítið vera rætt um úrlausn spurningarinnar, því síður að þar sé reynt að leysa úr henni í framkvæmd. Það virðist þó liggja í augum uppi, að hér sé um mikilvægt atriði að ræða, máske hið mikilvægasta við kanp- 1 félögin,. hvort þau-hafa eðli og lífskraft til þess að geta tekið alveg við af kaupmönuum og fullnægt verslunarþörf- um heimilisins, sveitarinnar, sýslunnar, alls landsins.

x

Tímarit kaupfjelaganna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit kaupfjelaganna
https://timarit.is/publication/328

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.