Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1896, Síða 17

Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1896, Síða 17
11 Geti kaupfélögin þetta eigi nema að nokkru leyti gagn- vart einstaklingunum og kéruðunum, Jmrfi þau óhjákvæmi- lega að hafa kaupmenn að bakhjalli, með höfuðstól sinn, lánveitingar og öll þau gæði, sem gömlu verzluuaraðferð- v inni eru samferða, þá er aðferð hinna nefndu kaupfélaga eðlileg. Sé þetta sannleikur, þá íinnst mér líklegt, að kaup- félögin geti aldrei orðið langlíf hér á landi. Þá er og hætt við, að eitthvað sé bogið í eðli og grundvelli þeirra. Bg fæ þá eigi séð, að kaupfélögin hafi þann sannleikskjarna í sér fólginn, að þau geti orðið ofaná í bardaganum. Þá eru vonir manna um það, að kaupfélögin geti átt drjúgan þátt í því, að auður og ágóði dreifist eðlilega meðal hinna mörgu einstaklinga, meðal frumherja framleiðslunnar, byggðar á sandi. Vér fslendingar megum þá búast við því að sæta sömu kjörum og fjöldi manna í hinum ýmsu menntalöndum: að verða með tímanum smátt og smátt háðir örfáum auðkýf- ingum, sem einlægt draga meira og meira af ágóða fram- leiðaudans og vinnu verkmannsins í sinn sjóð, unz þeir eiga í fullu tré með að halda lífinu. Eftir því sem auður og vald þessara auðkýfinga vex, að sama skapi verður framleiðandinn og vcrkmaðurinn að takmarka sínar þarfir og áhrif á mannlífið. Er enn eigi séð fyrir endann á því, hversu langt auðkýfingarnir kunna að geta komizt í þeim efnum að hafa áhrif á stjórn og skipulag þjóðfélaganna; það er eigi séð, hve djúpt þeir geta sökkt fjöldanum niður í liið voðalega djúp eymdar, ófrelsis og fátæktar. En það, sem komið er í ljós af slíku, er meira en nóg; það ætti að hvetja hvern hugsandi mann til þcss að neyta allrar orku til að reisa rönd gegn slík- um óvinafagnaði. Og þessi heljubrotsjór vofir yfir vorum litla þjóðlífsbát. Fyrstu öldugárarnir eru þegar farnir að * gera vart við sig. • Skoðið hag fátæklingsins í kotinu og þurrabúðarmanns- ius í þorpinu, þa.r sem húsráðendur eiga svo mikið undir kaúpmannsnáímm og grenslist eptir því, hvað þaðer, sem

x

Tímarit kaupfjelaganna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaganna
https://timarit.is/publication/328

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.