Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1896, Side 30
24
þegar svo kveður ramt að, að jafnvel merkir menn telja
það ekki neðan við virðingu sína að vekja upp drauga
og forynjur og fara svo kannske sjálflr á endanum að hafa
átrúnað á þessum uppvakningum.
Oss kaupfjelagsmönnum er sjerstök nauðsyn á að gera
greinarmun á þessari tvennskonar tortryggni. Fjelagvort
innbyrðis og öll viðskifti þess útvortis eru byggð á tiltrú.
Væri tiltrúin horfln, hryndi allt saman niður til grunna.
Vjer fjelagsmcnn þurfum saunarlega á mikilli tiltrú að
halda, bæði frá öðrum og innbyrðis hver til annars, til
þess að bindast fjelagsböndum og taka á oss hina þýðing-
armiklu ábyrgð, einn fyrir alla og allir fyrir einn. Það,
sem einkum mun hafa skort til samskonar fjelagsskapar
hvervetna þar sem hann er ekki kominn hjer á, er þessi
tiltrú. Og svo þurfum vjer meiri tiltrú, til þess að augna-
miði fjelagsins verði náð: Vjer þurfum menn, bæði utan
fjélags og innan, sem framkvæmi störf þess, sem beri um-
hyggju fyrir því og haldi uppi merki því, er það berst
undir. Þcssir menn mundu eigi verða fáanlegir, nema þeim
væri sýnd fullkomin tiltrú og þeim mundi ekki heldur fengin
í hendur störf og áhugamál, sem mikið er undir komið,
nema tiltrú fylgdi, sú tiltrú, að þessir menn muni bæði vera
færir að leysa starfið af hendi og gera það með trú-
mennsku og eftir beztu vitund. Og þessir starfsmenn
mundu aldrei vilja eða þora að leggja krapta síua og á-
huga í sölurnar fyrir fjelagsmenn, nema tiltrú þeirra fylgdi.
Þá þurfum vjer og starfsfje; þetta starfsfje fáum vjer að
miklu leyti Ijeð hjá öðrum, sem bera tiltrú til vor. Ann-
að veð on drcngskap vorn hafa þeir eigi. Grípi þá, sem
lána oss fjeð, allt í einu tortryggni til vor, þ. e. að segja,
þessi illkynjaða tortryggni, þá .er fjelagsskapur vor á flæði-
skeri. Tiltrúin er því allt í öllu: liún er bandið, er heid-
ur oss saman í fjélagslegu starfi, liöndin er vinnur þetta
starf, og verhfœrið (fjeð) sem starfað er með.
Og hún gerir eitt enn; eða hvernig færi, ef aldrei
væri nein tiltrú til, bara tortryggniu, sínagandi, kitlandi,