Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1896, Síða 47

Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1896, Síða 47
41 varðveitir andans arf nm aldur og ævi. það veldur mis- muninum á blámönnum í Afríku og Parísarbúum. Væri blámönnum kennt skipulag, og þeir frá fæðingu nytu upp- eldis í skólunum í París, þá væru þeir vísir til að ná fyrstu oinkunn. Væri bláinönnum kennt að not-a hraðskeytabyss- ur Frakka og fallbyssur Krúpps, þá væru þeir vísir til að reka Frakka burt úr París. En blámaðurinn stendur einn gegn öllum, því ekkert skipulag verndar einstaklinginn. Alt, sem hann veit og kann, verður hann á örstuttri einstaklingsævi að læra af sjálfum 'sér; hann hefir við engum andlegum arii tekið. Haun einn getur því í sannlcika heitið sjálfmenntaður mað- ur. Meðal menningarþjóðanna er raunar engin sjálfmennt- aður maður til. Par hefir hver og einn tekið þekkingu sína og þroska í arf; skipulagið neyðir hann til að taka við þeim arfi, hvort sem hann vill eða ekki. Jafnvel hinn allra sjálfstæðasti og sérstæðasti rnaður, sem meira en nokk- ur annar á þroska sinn sjálfum sér að þakka, á þó þjóð- félagi sínu mörgum þúsundsinnum meira að þakka on sjálf- um sér. í París fæðist hver maður til 2000 ára menning- ararfs, sem millíónir einstaklinga hafa safnað öld eftir öld. Hann er andlega ríkur erfingi, hversu fátækur sem hann er. Blámaðurinn er afkvæmi andlegra öreiga, því ekkert skipulag hefir gcymt honum arfinn. Höfundur bókarinnar, sem ég gat um, bendir Norður- álfubúum á, að ekki sé ástæða fyrir þá að hreykjast hátt, eða þykjast miklir af sínu andiega atgervi, þá er þeir heyra getið villumanna, sem ekki kunna að telja til fimm. Vér höfum engan rétt til að draga af því þá ályktun, að þessir menn hafi minni andlegan þrótt en vér. Þcir geta mjög vel verið jafnokar vorir að gáfum, þcir geta jafnvel verið framúrskarandi stærðfræðingar. Hinar fullkomnustu gáfur gagna manninum ekkert, nema skipulagið verndi hann. Að öðrum kosti stendur hann einn, og lærir aldrei að telja til fimm. Gáfumanninuin ferst því ekki að sparka í aðra mcun og hæða mannfélagið. Ef það tæki gjaíir

x

Tímarit kaupfjelaganna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaganna
https://timarit.is/publication/328

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.