Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1896, Síða 54

Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1896, Síða 54
48 tækir smáir“, og rétt vorn höfum vér fengið af skornum skamti. Hörmulegast er þó hitt, að það, sem vér höfum fengið, heiir komið oss að svo litlu haldi, að vafasamt rnætti virðast, hvort vér hefðum verið betur farnir, þótt vér hefðum fengið meira. Og hvers vegna? Af þvi vér höf- um glatað trúnni, trúnni á sjálfa oss, trúnni hver á ann- an, trúnni á þjóðlíf vort, á ættjörð vora, á líflð, á sigur hins góða, á guð í náttúrunni, á lögrnál lífsins. Þess vegna flýa menn nú úr landi, og virða að vettugi ættjörð og þjóð- líf. Og það litla, sem vér lærum nú af öðrum þjóðum, er vantrú, trúleysi á mannlífið, ekki einungis annað ósýnilegt líf, heldur einnig á þetta sýnilega, áþreifanlega líf, og hug- sjónir þess og framtíðarvonir. Það lítur næstum út eins og sumir lærdómsmenn vorir séu að apa aldalokaþreytuna (fin de siécle) eftir öðrum þjóðum, eins og vér um marg- ar aldir hefðum reynt alla hugsanlega vegi til að bætalíf vort, og alt til einskis. Þessi þreyta minnir á það, sem einu sinni slæddist hér inn í landið: að tyggja upp á dönsku“, nefnil. að tyggja eins og maður væri tannlaus. Yér höfum í margar aldir mókt, andlega aðgerðalaus- ir, hér út á horni veraldar, og eins og allir iðjuleysingjar gleymt að treysta á og nota vora eigin krafta, En á með- an hafa aðrar Evrópuþjóðir verið sístarfandi að því að fram- kvæma hugsjónir sínar, að flytja þær út í lífið. Auðvitað hefir þeim misheppnast margt, og árangurinn af starfinu hefi ætíð orðið minni, en þær gerðu sér vonir um, oghug- sjónirnar höfðu lofað þeirn. Það er því ckki undarlégt, þó að þær sæki við og við þreyta og vonleysi. En á oss, sem erum að byrja að lifa, höfum alt lífið og reynsluna fyr- ir framan oss, á oss situr það illa að sýna á oss þreytu- merki, áður en vér höfuur lagt nokkuð í sölurnar fyrir eina einustu hugsjón. Eða er nokkur sá, er haldi, að all- ir mögulegleikar lífsins séu tæmdir, að nú hafi mennirnir reynt alt, er reynt verður til umbóta á lífi sínu. Sé svo, þá er slik skoðun naumast svaraverð. En vér eigum að læra af reynslu annara þjóða, varast það, sem þeim hefir

x

Tímarit kaupfjelaganna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaganna
https://timarit.is/publication/328

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.