Samvinnan - 01.04.1968, Síða 18
áfram sókn sinni enn um sinn sumariS
1942, bæði í Rússlandi og Norður-Afríku,
þannig að þeir komust að Volgu, inní
Kákasus og til E1 Alamein við borgarhlið
Alexandríu, þá var farið að halla undan
fæti.
í árslok 1942 blöstu við hinar ömurlegu
afleiðingar af persónulegri stjórn Hitlers
á stríðsrekstrinum. Hann skipaði bæði
Rommel, sem sennilega var snjallasti
herforingi hans, og von Paulus að hörfa
ekki um hársbreidd við E1 Alamein og
Stalíngrad. Rommel virti þau fyrirmæli
að vettugi, og von Paulus lagði niður
vopn eftir að tilgangslaus slátrun á
mönnum hans varð óbærileg. Hitler
sleppti sér og bölsótaðist útí þá Þjóð-
verja sem ekki væru reiðubúnir að þola
þjáningar og dauða fyrir Foringjann og
Ríkið sem standa átti í þúsund ár.
Eftir að Bandaríkjamenn hófu þátt-
töku í stríðinu fyrir alvöru, og með sí-
minnkandi árangri af kafbátahernaði
Þjóðverja, brottrekstri þeirra frá Afríku
og ósigri við Stalíngrad, var ljóst orðið
öllum nema ofstækismönnum að Hitler
hefði enga von til að vinna stríðið. Þess-
vegna lögðu nazistar — sem bægðu frá
sér öllum hugsunum um ósigur — alla
áherzlu á að skipuleggja veldi sitt á sem
öflugastan og miskunnarlausastan hátt.
Þeir höfðu lagt undir sig gríðarmikil
lönd og tugmilljónir manna; nú reið á að
tryggja óskorað vald og hagnað. Hinum
herteknu þjóðum var skipt í þrjá meg-
inhópa: náttúrlega þræla (Tékka, Pól-
verja, Rússa, Ungverja, Lítháa, Eistlend-
inga o. fl.), norræna menn og vestrænar
menningarþjóðir, einsog Dani, Norð-
menn, Hollendinga, Frakka og ítali, sem
gætu orðið aukaaðiljar að Þýzka heims-
veldinu, og loks „óhreina kynbætti",
einkanlega gyðinga eða menn með gyð-
ingablóð, sem helzt þurfti að uppræta.
Jarðarbúar eru sennilega orðnir leið-
ir á að rifja upp hin ótrúlegu fólskuverk
þýzku nazistanna í þræla- og útrýming-
arbúðum, og þýzka þjóðin hefur leitazt
við að gleyma martröðinni og þeirri sök
sem Þjóðverjar báru á henni. Aldrei fyrr
eða síðar í mannkynssögunni hefur ann-
aðeins grimmdaræði brotizt út, og það
með einhverri mestu menningarþjóð í
heimi. Tölurnar yfir tortíminguna segja
ekki nema brot af sögunni, en sam-
kvæmt þýzkum tölum voru samtals sex
milliónir gyðinga drepnar á gasi eða
skotnar, þaraf tvær milljónir í Maut-
hausen-búðunum í Austurríki og þrjár
milljónir í Auschwitz í Póllandi. í raun-
inni er það algerlega ofvaxið mennskri
ímyndun að gera sér grein fyrir hvílíkar
þjáningar, niðurlæging og örvænting
urðu hlutskipti fórnarlambanna. Auk
gyðinganna og hinna pólitísku fanga
voru fimm milljónir erlendra verka-
manna, karla og kvenna, fluttar til
Þýzkalands frá hernumdu löndunum til
nauðungarvinnu.
Á árunum 1943 og 1944 héldu hrak-
farirnar áfram að margfaldast. Mussolini
var steypt á Ítalíu, kafbátahernaður
Þjóðverja lamaðist, herir bandamanna
gengu á land í Frakklandi, tóku París og
héldu áfram austurábóginn, Rússar
hröktu Þjóðverja miskunnarlaust til baka
yfir Hvíta-Rússland og Úkraínu að landa-
mærum Rúmeníu, Póllands og Austur-
Prússlands. Hitler stjórnaði hernaðinum
úr sprengjuheldu byrgi í Austur-Prúss-
landi, kom sjaldan fram opinberlega, var
iðrunarlaus en hnignaði óðfluga, varð
magaveikur og háður æ stærri lyfja-
skömmtum sem leiddu m. a. til tíðra reiði-
og móðursýkiskasta. Hann einangraði sig
smámsaman fullkomlega, hætti jafnvel
að hlusta á tónlist Wagners sem hafði
verið yndi hans, hitti vini sína sjaldan
og hætti samneyti við trygglynda en illa
gefna fylgikonu sína, Evu Braun. Auk
hershöfðingjanna og einkaritara sinna
hafði hann nú einungis samneyti við of-
stækismenn einsog Himmler, Bormann
(nýjan staðgengil sinn) og stundum
Goebbels — en aldrei Göring sem nú var
orðinn mjög gagnrýninn og ekki lengur
í náðinni. Ennfremur umgekkst hann
einkalækninn, Morell, sem margir töldu
vera skottulækni, og Elsass-tíkina sína,
Blondi. Eftir því sem sálsýkin jókst varð
umhverfi hans og heimurinn allur óraun-
verulegri, þannig að undir lokin sá hann
sjálfan sig og trygga vini sína í hlut-
verkum hetjanna og hálfguðanna úr óper-
um Wagners, sem farast í eldslogum ör-
laganna ásamt með Valhöll. Ragnarök
Hitlers hófust með ósigrinum við Stalín-
grad.
Loks gerðist það 1943—44 að hópur
herforingja með Beck í broddi fylkingar
gerði samsæri um að ráða Hitler af dög-
um og taka völdin. Hætt var við nokkur
tilræði, unz von Stauffenberg ofursti kom
skjalatösku með tímasprengju inní bæki-
stöð Hitlers 20. júlí 1944, bað um leyfi til
að fara í síma, heyrði sprenginguna, hélt
að tilræðið hefði heppnazt og hringdi til
Becks í Berlín, sem tilkynnti lát Hitlers
og valdatöku hersins. En þó sprengjan
hefði valdið Hitler taugaáfalli, hafði hún
ekki gert útaf við hann. Goebbels greip
til skjótra ráðstafana og fékk Hitler til
að tala i útvarp til þjóðar sinnar, þó
hann væri illa til þess búinn. Beck
framdi sjálfsmorð, og tilræðisins var
grimmilega hefnt, ekki einungis á þeim
sem átt höfðu þátt í því, heldur einnig
þúsundum annarra sem ekki voru bein-
línis við það riðnir. Flestir þeirra voru
hengdir, en þjóðhetjunni Rommel var
gefinn kostur á að svipta sig lífi, eftir
að hann hafði kvatt konu og börn. Síðan
var hann jarðsettur með mikilli viðhöfn,
en tilkynnt að dánarorsökin væri hjarta-
bilun.
í ágústmánuði framdi hernámsstjóri
Þióðverja í Frakklandi, von Kluge mar-
skálkur, einnig sjálfsmorð og sendi Hitler
lokaorðsendingu um að biðja um frið.
Hitler lifði enn í draumheimi og setti
allt sitt traust á „leynivopn" sem Werner
von Braun og aðrir voru að vinna að
fyrir hann. En herir bandamanna flæddu
yfir skotpalla þessara nýju eldflauga í
Frakklandi og Niðurlöndum áður en hægt
væri að nýta þær til fulls. Aukbess voru
nú stanzlausar loftárásir á þýzkar borg-
ir jafnt á nótt sem degi farnar að segja
til sín.
Gripið var til örþrifaráða eftir
sprengjutilræðið til að fylla í hin stóru
skörð í hernum. Hver einasti karlmaður
á aldrinum 16 til 60 ára var kvaddur
til herþjónustu, og liðsaukanum var
dreift á vígstöðvarnar í Rússlandi og í
vestri, á ftalíu, í Skandínavíu, Júgóslavíu,
Ungverjalandi. Um gervalla hina her-
numdu Evrópu voru skæruliðar og and-
spyrnuhreyfingar farnar að láta miög til
sín taka, enda létu tugbúsundir föður-
landsvina lífið eftir grimmilegar pynd-
ingar Gestapó-manna.
f ársbyrjun 1945 settist Hitler endan-
lega að í Berlín, þar sem lokabáttur
harmleiksins skvldi leikinn. Borgin var
þegar í rúst eftir loftárásir Breta og
Bandaríkjamanna. Rússar voru að búa
sig undir hina grimmilegu lokaárás, en
Hit.ler og starfslið hans dvöldust ýmist
í velbúnu stjórnarráðinu eða tænlega 20
metra. diúpu steinsteyptu loftvarnabvrgi
í garðinum. Hann var nú orðinn alger-
le°-a háður lyfium og sprautum. Þó hann
væri einungis 55 ára, var hann orðinn
gamaimenni sem hiálpa varð til að set.i-
ast. Öðruhverju rauk hann uop og flutti
Móðugar skammaræður um „fínu herr-
ana“. hershöfðingiana. Göring sem sæti
á svikráðum við sig eða síðasta undir-
manninn sem ekki hafði gert einsog
fyrir hann var lagt. Undir vorið var
hann algerlega búinn að missa stjórn á
atburðunum og vissi ekki framar hvað
var að gerast á hinum ýmsu vígstöðvum.
Snemma í apríl kom Eva Braun á vett-
vang til að deila hinztu örlögum hans.
Þá var ástandið orðið vonlaust. Banda-
ríkiamenn voru komnir að Elbu og Rúss-
ar í útborgir Berlínar. Roosevelt lézt og
bví var fagnað með kamnavini. Himml-
er hóf friðarumleítanir. Aðeins GoebÞels,
Bormann og örfáir aðrir nazistaleiðtog-
ar voru um kyrrt hiá Foringjanum. Lok-
in voru í nánd. Rússar voru farnir að
skióta á stiórnarráðið skömmu áður en
fréttir bárust um endalok Mussolinis.
Hitler ætlaði ekki að láta svo ömurleg
örlög verða sitt hlutskipti. Hann gerði
..pólitíska erfðaskrá" har sem hann sak-
aði gvðinga um upptök stríðsins, gekk
formlega að eiga Evu Braun, skaut
Blondi, útnefndi Doenitz flotaforingja
eftirmann sinn (furðuleg og tilgangslaus
útnefning), pantaði benzín fvrir lík-
hrennsluna, kvaddi starfsliðið með
handahandi og lokaði sig inní herbergi
með Evu Braun. Hún tók eitur, hann
skaut sig gegnum munninn. f kúlna-
regni Rússa voru lík þeirra brennd í
snatri. Goehbels fór að dæmi Foringj-
ans, gaf börnum sínum eitur, skaut konu
sína og siálfan sig. Himmler framdi einn-
ig sjálfsmorð og Göring sömuleiðis með-
an á réttarhöldunum í Núrnberg stóð,
en aðrir helztu foringiar nazista voru
hengdir fyrir stríðsglæpi að réttarhöld-
unum loknum.
□
Þau mistök urðu í mvndatexta í síðasta
hefti, að kona Churchills var sögð banda-
rísk, en hún var brezk, búsett í fyrsta
kjördæmi hans, Dundee i Skotlandi.
Hinsvegar var móðir Churchills banda-
rísk.
18