Samvinnan - 01.04.1968, Page 38
IX. Samvinna safnanna og
undirbúningur sam-
einingar.
Nú hefur verið reifað laus-
lega ýmislegt um fyrirkomulag
og rekstur sameinaðs safns, en
þó að byrlegar tæki að blása
um byggingarmál en hingað til,
líða óhjakvæmilega allmörg ár,
þar til hún kemst að fullu
til framkvæmda. En á meðan
er nauðsynlegt að búa í hag-
inn fyrir sameininguna með
náinni samvinnu og samræm-
ingu á starfsaðferðum, er leitt
gæti til stjórnarfarslegrar sam-
einingar nokkrum árum áður
en söfnin flytjast undir eitt
þak.
Þegar Landsbókasafni voru
síðast sett lög árið 1949, var
gert ráð fyrir, að söfnin hefðu
með sér talsverða samvinnu.
í 6. grein laganna segir: „Safn-
ið skal reka miðstöð bóka-
skipta við erlend söfn og vís-
indastofnanir." En í 7. grein:
„Halda skal uppi sérstakri
skráningarmiðstöð fyrir söfn
þessi [þ. e. Lbs., Hbs. og sér-
fræðibókasöfn í eigu ríkis og
félaga], og má fela Háskóla-
bókasafni forstöðu hennar að
fengnu samþykki háskólaráðs.“
Einnig skyldi háskólaráð setja
Landsbókasafni ráðunauta um
bókaval, en þá ráðstöfun verð-
ur að skilja svo, að Lbs. skyldi
framvegis hafa nokkrar skyld-
ur að rækja við Háskólann.
Hlálegt er til þess að vita, að
þau nálega tuttugu ár, sem lög
þessi hafa verið í gildi, hefur
ekkert af þessu orðið að veru-
leika, og enn er nánast eng-
in fastmótuð samvinna með
söfnunum, þrátt fyrir tilmæli
valdhafa í þá átt, aðeins laus-
leg hliðsjón höfð, að því er
varðar bókakaup. Taka ber þó
fram, að milli starfsliðs safn-
anna er gott samkomulag, svo
að ekki er það til hindrunar,
og komið hefur til tals að halda
sameiginlega starfsmanna-
fundi til skrafs og ráðagerða.
En greinilegt er, að meira þarf
þó til, svo að um virka sam-
vinnu geti orðið að ræða, og
þá umfram allt meira starfslið.
Ég vil t. d. nefna gagnkvæm
bókalán milli safnanna, en
eins og kunnugt er, eru slík
millisafnalán rækt í stórum
stíl erlendis. Er bágt, að við
skulum ekki nýta þá litlu
möguleika, sem við höfum á
þessu sviði. Þyrfti að vera unnt
að fylla út í hvoru safninu um
sig kvittanir fyrir bókum úr
hinu, en síðan flytti sendill á
milli kvittanir og bækur. Þess-
ari starfsemi hlytu þó að verða
mikil takmörk sett, meðan eng-
inn er samskráin. Hefur ver-
ið beðið um starfskraft til
þeirra hluta öðru hverju síðast
liðin hartnær 20 ár, og með
vaxandi þunga nú síðustu ár-
in, en án árangurs.
í kaflanum um ríkisbóka-
vörð hér að framan var þess
getið, að sett hefði verið reglu-
gerð um samskráningu (skrán-
ingarmiðstöð) 1956. Er þar
ákveðið gert ráð fyrir, að sú
starfsemi sé á vegum Lbs., en
í lögunum frá 1949 var svo að
orði kveðið, að fela mætti Hbs.
forstöðu hennar, enda er það
öllu eðlilegra, þar sem ætla
verður, að háskóli sé brenni-
depill rannsókna og fræðiiðk-
ana. En þetta skiptir þó ekki
höfuðmáli, eins og á stendur,
þar eð stefnt er ákveðið að
sameiningu safnanna. Aðalat-
riðið er, að hafizt verði handa,
og má hugsa sér, að í taili skipti
söfnin með sér verkum. Er
brýnast að koma upp og gefa
út samskrá um erlend tímarit.
Vísir að slíkri skrá um raun-
vísindatímarit er þegar til í
Hbs., og ætti það að halda
áfram með þann þáttinn, en
Lbs. hins vegar taka að sér að
gera húmanískum tímaritum
skil. Slíkar skrár eru víða gerð-
ar með aðstoð tölvu og útskrift
hennar offsetprentuð. Góð skil-
yrði ættu að vera til slíks hér.
Þá segir í fyrrgreindri reglu-
gerð frá 1956: „Gefa skal út
sameiginlega ritaukaskrá,
prentaða eða í fjölriti, þegar
fé verður veitt til þess í fjár-
lögum.“ Þetta er annað brýnt
verkefni samskráningar, sem
fært ætti að vera að ráðast í,
áður en langt líður. Ætti einn-
ig að hugleiða tölvunotkun við
það verk, en með því móti væri
auðvelt að stokka saman hina
árlegu ritauka öðru hverju, t.
d. á 5 eða 10 ára fresti og gefa
út í einu lagi til að gera mönn-
um notkunina auðveldari.
Þriðja samskráningarverkefn-
ið yrði svo að vinna upp ein-
staka efnisflokka bóka aftur
í tímann, og er það ekkert
áhlaupaverk, eins og skráning-
armálum er komið hér viða.
Áður var á það minnzt, að
söfnin reyndu að hafa dálitla
hliðsjón af bókakaupum hvors
annars til að forðast alltof
mikil tvíkaup. En um alger
verkaskipti um bókakaup get-
ur ekki orðið að ræða, meðan
söfnin starfa sem tvær óháðar
stofnanir og með jafnóákveð-
inni hlutverkaskiptingu og nú
er. Þróunin hefur orðið sú, að
bækur um raunvísindi, lög-
fræði, guðfræði, viðskipta-
fræði, uppeldis- og sálarfræði
koma að mestu leyti í hlut Hbs.,
en hins vegar kaupa bæði söfn-
in bækur í allflestum húman-
iskum greinum, svo sem tungu-
málum, bókmenntum, sögu,
heimspeki, landafræði, þjóð-
félagsfræði, bókasafnsfræði o.
fl. Lbs. er miklu auðugra að
bókaskrám, stórum og smá-
um, og fyrirferðarmiklum al-
fræðibókum og handbókum.
Hbs. hefur aldrei haft fjárráð
til að eignast neitt sem heit-
ið geti af svo stórum og dýr-
um verkum, en eigi safnið að
verða sjálfu sér nógt um þessa
hluti, kostar það nokkurra
milljón króna fjárfestingu.
Raunin hlýtur að verða sú, að
eftir því sem menn kynna sér
betur bókakost safnanna og
hugsanlegar leiðir til verka-
skiptingar um bókakaup, því
sannfærðari verði þeir um, að
hagkvæmasta lausnin hljóti að
verða að gera úr þeim eitt bú.
Eins og nú háttar úthlutar
ríkissjóður söfnunum hvoru
um sig vissri fjárhæð til bóka-
kaupa og bókbands, og er Hbs.
nú rúmlega hálfdrættingur á
við Lbs. um fjárveitingu. En
þessi skipting hefur ráðizt af
algeru handahófi, og ætti að
stefna að því, eftir því sem
starfsemi safnanna þokast
meira í sameiningarátt, að þau
tækju fé úr einum sameigin-
legum bókakaupasjóði. Öll við-
leitni til að stilla söfnunum
upp sem keppinautum, bæði á
þessu sviði og öðrum, hlýtur að
leiða til ófarnaðar.
X. Lokaorð.
Þessi grein er nú orðin all-
löng, og hefur verið drepið á
margt án þess að gera neinu
af því rækileg skil. En til þess
að gera mál þessi skýrari fyrir
lesendum, vil ég að lokum
draga saman í stuttu máli það,
sem ég tel brýnast, að gert sé.
Könnuð verði staða og ásig-
komulag allra rannsóknarbóka-
safna miklu nánar en til þessa
hefur verið gert. Þessa könnun
skulu bókaverðir hafa með hönd-
um í samvinnu viö forstöðumenn
stofnana og undir forustu ríkis-
bókavarðar, en eðlilegast er, að
meö það embœtti fari yfirbóka-
vörður þjóðbókasafns. Sé því nán-
ast um að rœða útvíkkun á hlut-
verki hans.
Háskólabókavörður og siðar yf-
irbókavörður sameinaðs safns fái
rétt til þátttöku í störfum há-
skólaráðs.
Við núverandi endurskoðun á
launakerfi ríkisins verði fjölgað
starfsheitum og launastigum jyrir
bókasafnsfólk og síðan stefnt að
meiri verkaskiptingu í söfnunum,
ekki sizt með ráðningu aðstoðar-
fólks, sem nú er nánast ekki til.
Hafinn verði strax undirbúning-
ur að sameiningu Landsbókasafns
og Háskólabókasafns, en það starf
mundi einkum fólgið í ejtirfarandi
þáttum:
1) Að leiöa jram skýrar en gert
hefur veriö til þessa rök þau,
er mœla með sameiningu safn-
anna. Veigamikill liður í því
starfi er athugun á bókakosti
þeirra og að hve miklu leyti
og á hvern hátt hann skuli
sameinaður.
2) Að gera sér grein fyrir, hvernig
sameinað safn verði byggt upp
skipulagslega og stjórnarfars-
lega.
3) Að gera frumdrœtti að bóka-
safnsbyggingu, svo að Ijósara
verði, hve stór hún þyrfti að
vera og á hvern hátt reisa
mœtti hana í áföngum.
Meðan beðið er eftir því, að
söfnin sameinist að fullu, verði
búið í haginn fyrir sameininguna,
m. a. með því að koma á sam-
vinnu, svo sem ráðgert var þegar
fyrir 20 árum, en ekkert hefur
oröið úr. Forsenda þess er þó, að
stjórnarvöld sýni kröfum safn-
anna um starfslið meiri skilning
en hingað til. í framhaldi af þessu
œtti að sameina söfnin formlega,
áður en þau flytjast undir eitt
þak.
Einar Sigurðsson.
KRISTINN JOHANNESSON:
KRAFAN UM
ÞJÓÐARBÚKHLÖÐU
i
Hvað er bókasafn? Herbergi,
þar sem bækur eru geymdar í
röðum í hillum, í kössum og
stöflum á borðum og gólfum?
Dauður staður? Grafhvelfing
fyrri alda verka? Alls ekki.
Bókasafn er staður lífsins, þar
sem gamalt og nýtt mætist,
þar sem nútímamaðurinn
sækir sér fróðleik í fylgsni
fyrri alda, kynnir sér nýjustu
uppgötvanir á sviði tækni og
vísinda og kynnist viðhorfum
samtímabókmennta, innlendra
sem erlendra. Sum bókasöfn
miða bókakost sinn við af-
markað svið. Önnur standa á
breiðum grundvelli. Starf for-
stöðumanna bókasafna er
vandasamt. Það er á þeirra
valdi að gera safnið lífrænt og
áhugavert með góðu skipulagi
38