Samvinnan - 01.08.1968, Side 40

Samvinnan - 01.08.1968, Side 40
Guðmundur Halldórsson, Bergsstöðum i Þennan dag stóð austanstormurinn upp á brekkuna og þyrlaði moldinni, sem bílarnir losuðu af sér á nokkurra mín- útna fresti þar á brúninni og gerði okk- ur hálf blinda og heyrnardaufa. Verkst.iórinn hafði ekið niður í stað- inn, skömmu eftir að byrjaði að hvessa, svo við lögðum meiri rækt við að ná henni framan úr okkur en við verkið, sem við áttum að vinna. Allir nema gamli bóndinn. Ég og gamli bóndinn tókum á móti sniddunni og komum henni fyrir í kantinum, og nú stóð upp á strákana, sem köstuðu henni af bílpallinum, og bað stóð einnig upp á hina sem fylla áttu á bak við snidduröðina svo við gæt- um haldið áfram að hlaða. Gamli bónd- inn horfði brúnabungur á strákana. Það gætti óbolinmæði í svipnum, og hann var lengi búinn að gefa þeim illt auga. Það hafði sjaldan liðið svo heill dagur að hann stæði ekki í einhverju hnútukasti við þá út af lélegum vinnubrögðum. Þeir höfðu nú fyrir skömmu lagt frá sér verk- færin og horfið upp af brekkubrúninni og komið sér þar í skjól á bak við hús. Annars voru þetta allt beztu strákar inn við beinið, sem oftast unnu mjög vel en höfðu svolítið gaman af að rífa kjaft við gamla bóndann. Ég fór að hugsa um þessa umkomulausu brekku, sem við áttum að gera að staðarprýði. Á henni höfðu lengi gnauðað hráslagalegir vindar norðan af flóanum og austan úr svörtum fjöllum austursíðunnar. Hún var eins og opin und á yfirbragðsleysi kauptúnsins. Ég vissi ekki hvort fólkið hafði haft nokkra skoðun gagnvart henni og útliti hennar, þangað til nú, að einhverjum í þorpinu hugkvæmdist, á undan yfirvof- andi kosningum, að flytja mold og sniddu um langan veg til að hylja dauðgrátt upplit brekkunnar hvert vor, þótt ekkert annað lifnaði þar. Þegar klukkan á kirkjuturninum upp á brekkunni sló fimm og hálf, voru strák- arnir enn ekki komnir úr vari sínu á bak við húsið. Ég sá, að einn þeirra hafði varðstöðu á brekkubrúninni, þeir skiptu þar á milli sín að vera til taks, að kom- ast niður fyrir hana og grípa verkfærin ef sæist til verkstjórans koma. Storminn hafði lægt. Það var á þessum tíma dags, sem konurnar úr húsunum undir brekkunni og niður í staðnum komu kápuklæddar út úr húsum sínum bakdyramegin, að ganga niður í búðina til kaupa í matinn. Þær komu einnig ofan af brekkunni og neðan úr staðnum. Sumar óku barna- vögnum og höfðu innkaupatöskurnar hangandi utan á þeim. Ef þær voru með net undir úttekt sina, sáum við fiskinn, kaffið, fransbrauðin og mjólkurflösk- urnar, sem þær ætluðu í kvöldmatinn, en örsjaldan kjöt. Ég var stundum að hugsa um hvort mennirnir þeirra gerðu betur en vinna fyrir matarkaupunum yfir daginn. Hvort nokkuð stæði eftir upp í aðrar nauðsynj- ar, afborganir af skuldum af nýbyggðum húsum, sem minntu á villurnar í Laugar- ásnum syðra, eða af hálfköruðum hús- skrokkum og af nýjum bílum, sem þeir óku á heim í matinn um sjöleytið á kvöldin, þótt fleiri ækju á gömlum skrjóðum, sem þeir urðu að leggjast und- ir flest kvöld að færa í lag eitt og ann- að, sem alltaf var að bila, ef þeir áttu að vera gangfærir að morgni. Stundum námu þessar konur staðar á götunni fyrir neðan þar sem við vorum að vinna. Ég vissi eftir ýmsum króka- leiðum að þá voru þær að stinga sam- an nefjum um útgjöldin, sem af þess” hlytust og eiginmenn þeirra yrðu a* greiða í hækkuðum sköttum. Um öll vinnusvikin og þetta hefði átt að fram- kvæmast öðruvísi. Ekki hvernig öðruvísi heldur einhvernveginn öðruvisi. Það voru mjög fáar konur sem töluðu við okkur eða köstuðu á okkur kveðju um leið og þær fóru framhjá. Og enn færri, sem töluðu um blettinn sem væntanlega staðarprýði. Ég vissi ekki hverskonar augum þær voru litnar af stallsystrum sínum, þótt ég væri stundum að brjóta heilann um það. II Þannig höfðu dagarnir í kauptúninu liðið fyrir mér þetta vor og nú var slátt- ur byrjaður í efra. Mér fannst þessi stað- ur helzt umberanlegastur þau kvöld vik- unnar, sem ég gat ekið fram í sveit, þar sem ég fékk saltkjöt að borða, gat teygað kalda mjólk, sem ekki hafði gengið í gegnum einhverjar vélasamstæður er gerðu hana fitulausa og bragðvonda. Þar sem maður komst stundum í heyskap á túni, stutt þar frá, sem fuglar færu með friðsæla kvöldbæn uppi í grónu fjalli. En vænst hefði mér þótt um staðinn þann dag, sem ég hefði getað horfið úr honum með þá öruggu vissu að þurfa aldrei að koma þangað aftur. Það fór enn lygnandi. Moldin safnað- ist upp undir brekkubrúninni. Strákarnir sátu enn í skjóli á bak við húsið. Gamli bóndinn hætti mokstrinum og kom til mín. Hann var lotinn í herðum. Andlitið hrukkótt með stór útstæð augu, þar sem mikið bar á hvítunni. Það var raunar fátt, sem lesa mátti úr svip mannsins, nema hin ósjálfráða kergja, að gefast ekki upp fyrir örlögum sínum, hversu andstæð sem þau annars yrðu honum, og svo dyggðin, að geta alltaf staðið hreinn með sitt gagnvart yfirmönnum sínum. Hann hallaði sér fram á skófluna. Grá- ir svitastorknir hárdúskar vöfðust upp á faldinn á húfunni í vöngunum og aft- an á hálsinum. — Seint finnst þessum andskotum út- gjöldin nógu há, sagði hann. — Nú? — Þessi peningaaustur í brekkuna þá örnu er ekkert nema vitleysa og óverj- andi bruðl. — Hún ætti að gefa staðnum betri lit og ilm, þegar hún er gróin, svaraði ég annars hugar, en vissi með sjálfum mér hún mundi hvorki gefa þessu plássi lit né ilm, í hæsta lagi lykt, þangað til fæt- ur manna og dýra hefðu traðkað þetta í sundur og vatn og vindar farið með af- ganginn. — Ég skil ekki þegar menn, sem hlaup- ið hafa af góðum jörðum, fá allt í einu bennan rokna áhuga fyrir grasi hér í neðra, sagði bóndinn. — Af hverju fórst þú? — Konan var heilsulaus. — En börnin, gátu þau ekki hjálpað til? — Þau voru í bernsku. — Hvað ertu gamall? — Sextíu og fimm. — Þú hefur byrjað of seint. — Ha? Ég svaraði ekki. Augu hans urðu að stórri hvítri spurn, unz hann skildi hvað ég átti við. — Mér er andskotans sama, hvað þú segir. Þessi blettur verður aldrei nema dýrt og ógeðslegt snobb, uppfundið af mönnum, sem halda þeir séu eitthvað. — Þú áttir góða hesta á meðan þú bjóst. Ég vissi hann komst alltaf í gott skap, begar minnzt var á hestana hans. — Ég átti einn rauðan. Mikið lifandi fádæmi var sá hestur góður. Svo átti ég tvo jarpa . . . — Nú eiga sumir tvo bíla hérna í neðra. Og þetta með hestana, er það ekki næst- um liðin tíð í sveitunum, greip ég fram í fyrir honum, af því ég kunni sögurnar hans um hestana. — Tvo bíla, át bóndinn eftir mér. Fyrir hvað kaupa þeir þá, hvar taka þeir laun- in sín? — Sennilega fyrir einhverja þjónustu, svaraði ég. — Þeir taka þau af framleiðslu okkar bændanna, þó við rísum ekki undir striti og skuldum. Hann talaði alltaf um okk- ur sem bændur þegar hann var í vond- um ham, nema daginn sem þeir fóru í göngurnar haustið áður, þar sem hann hafði stjórnað ótal leitum haust og vor. Þá fannst mér hann hvergi geta talið sig í stétt, væri upp á móti öllum, ætti hvergi heima, en sá kostur vænstur, 36

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.