Samvinnan - 01.08.1968, Qupperneq 60
* síónarnjiA.
„Þrenningin tilbeðin af herskörum himnannaMálverk eftir Jacopo Tintoretto.
Gísli Gunnarsson
í grein þessari um trúmál verður
einkum fjallað um kristna trú, þar sem
hún er óneitanlega nær íslendingum en
önnur trúarbrögð. Yfirleitt fjalla einung-
is áhangendur kristinnar trúar um hana,
aðrir vilja sem minnst um hana tala og
bera jafnvel við að slíkt mætti ekki „því
að aðgát skal höfð í nærveru sálar“.
Áhrif mannúðarstefnu siðustu alda á
vissa þætti kristins trúarboðskapar hafa
ur léð kristninni annan svip í augum
fjöldans en áður var, eitthvað fallegt,
yndislegt og rómantískt, og almenningur
hefur gengið út frá því sem gefnum
hlut að trú og manngæzka hljóti að
vera samtengd fyrirbæri. Ég mun í grein
þessari draga þetta sérstaklega í efa og
yfirleitt deila á grundvallaratriði krist-
innar trúar. Vona ég, að þá muni óæski-
leg þögn um kristna trú rofin og and-
stæðingar mínir í þessum málum þá láta
til sín heyra og verja trú sína.
Einn guð og margir
Eðlilegt er fyrst að skilgreina milli al-
mennrar guðstrúar og kristinnar trúar,
sem aðeins er einn þáttur hins fyrr-
nefnda. Almenn guðstrú felst í trú á
yfirnáttúrlegu afli, sem á að vera fyrir
utan og ofan náttúrulögmálin, er þeim
æðri, — afli, sem menn ná ekki til með
aðferðum vísinda, þ. e. rannsóknum og
gagnrýninni leit, heldur ná menn til þess
með „mystik“, „dulrænni reynslu", venju-
lega í formi helgisiða og/eða bæna. Þessi
trú á hið yfirnáttúrlega aðskilur guðs-
dýrkandann og guðleysingjann.
Einfaldasta og frumstæðasta tegund
guðsdýrkunar er trú á persónubundinn
guð. Hindúismi hefur að nokkru leyti
komizt af þessu frumstæða stigi; af-
kvæmi hans, Búddisminn, hefur komizt
miklu lengra. Eingyðistrú er sennilega
eðlilegust mannlegu eðli, þ. e. trú á yfir-
guðinn, sem öllu öðru ræður. Júdaisminn,
— trúin á Jahve — virðist fyrst þekktra
trúarbragða hafa varpað undirguðunum
fyrir borð í sambandi við átrúnað, þótt
þeir hafi öðru hverju birzt á nýjan leik í
Júdaisma og afkvæmum hans, kristinni
trú og Islam, í formi djöfuls, engla og
dýrlinga. Rétttrúaður Júdaismi afneitar
þessu öllu, kristin trú meðtók allt og með
áherzlu sinni á hlutverki Jesú Krists
skipaði yfirguðnum í sæti fjær mönnum
en skyld trúarbrögð gera.
Erfðasyndin og eingetinn sonur Guðs
Ef á að skilja eðli kristinnar trúar, hafa
guðspjöllin, orð þau sem höfð eru eftir
Jesú Kristi, aðeins takmarkað gildi; hér
verður fyrst og fremst að líta á túlkun
kristinna manna og kirkju á trú sinni,
eins og þeir hafa boðað hana og krafizt
hlýðni við um allar aldir. f stuttu máli:
kristna trúfræði.
Eftirtalin atriði aðskilja kristna trú
einkum frá öðrum tegundum guðstrúar:
Mikil áherzla á erfðasyndina. Maður-
inn er fæddur syndugur, vondur. Nýfætt
barnið er dæmt djöflinum (sem freistaði
Evu) þangað til það hefur öðlazt blessun
Guðs.
Sá, sem er syndugur og vondur, þjónar
djöflinum í lifanda lífi og mun halda því
áfram eftir dauðann með eilífri pínu.
Allir menn lifa eftir dauðann sem
einstaklingar (ekki sem hluti af heild).
Trú á einstaklingsbundið líf eftir dauð-
ann.
56