Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1963, Page 10

Andvari - 01.06.1963, Page 10
8 SÍMON JÓII. ÁGÚSTSSON ANDVARI mörgu samtíðarmenn okkar, sem óttast að mannkyniS fari sér aS voSa, stofni til- veru sinni í hættu meS uppfinningum sínum og tækni, feta vitandi og óvitandi í spor Rosseaus og beita aS breyttu breyt- anda sömu rökunr og hann. Rousseau varS á svipstundu frægur maSur, raunar mjög umdeildur. Ferli bans sem hugsjónamanns og brautrySj- anda hefSi nú getaS veriS lokiS, ef bann hefSi sótzt eftir auSi og metorSum, sem bvorttveggja stóS honum til boSa. Nú brast bann hvorki þrck né kjark. ÞaS mun cins dæmi um mann í Frakklandi á þess- ari ritskoðunaröld, að hann ritaði aldrei bækling né bók, nema undir fullu nafni. Hann hafnaði vellaunuðum málamyndar- stöðum, sem áhrifamenn buðu honum. Ber þetta hvorttveggja vitni bugrekki hans og siSferðisþreki. Fastra tekna, sem nægðu honum til framfæris, aflaði bann sér með nótnaskrift. Ilún varð honum það, sem glerslípunin var Spinoza. Um það leyti, sem Rousseau fékk köll- un sína, fór bann að kenna illkynjaðs blöðrusjúkdóms, sem þjáði bann síðan alla ævi. Haustið 1749 ætluðu læknar honum ekki lengra líf en svo sem sex mánuði. Arið 1754 birti hann ritgerð sína um upprunann að misrétti manna. (Discours sur l’origine et les fondements de l’inéga- lité parmi les hommes). Er hún miklu veigameiri og lengri en hin fyrri. Samdi hann hana í Genf og tileinkaði fæðingar- borg sinni hana. Þegar hann gerðist ka- þólskur, fyrirgerði hann þar með borgara- rétti sínum í Genf. Nú var hann orðinn frægur maSur og virtur. Hvarf hann nú aftur til kalvínstrúar og naut við trúar- skiptin mikils góðvilja þeirrar nefndar, er um mál hans fjallaði. Nú hefjast hin mestu hamingjuár og heztu starfsár Rousseaus. Frú d’Epinay, auðug og menntuð aðalskona, lét reisa handa honum lítið en hentugt hús, Ermi- tage, Hús einsetumannsins, í landareign sinni í Montmorency, og var liann þar ásamt Theresu gestur hennar. Hinn 9. apríl 1756 fluttist hann í húsið og var þar rúmt ár, en dvaldist siðan á vegum annarra aðalsmanna þar í nágrenninu fram á árið 1762. Tryggustu vinir Rousseaus, sem reyndust honum bezt, voru menntaðir menn og konur af franska háaðlinum. Á þessum 6 árum voru af- köst hans með ólíkindum, og ritaði hann þá flest frægustu verk sín: BréfiS til d’Alemberts um sjónleiki, sem er allstór bók. Veittist hann þar mjög að leikhús- um og sjónleikjum. Skáldsaga hans Julie ou la Nouvelle Héloise kom út 1761, Þjóðfélagssamningurinn (Le Contrat Social) og Emil komu út sumarið 1762. Aðeins tvö merk rit samdi hann síðar, Játningar (Les Confessions) og Dag- drauma einmana göngumanns (Réveries du promeneur solitaire), sem hann lauk aldrei viS. Komu þau bæði fyrst út að honum látnum. Dvöl Rousseaus í Montmorency var á flestan hátt afdrifarík fyrir hann. Þar naut hann fyrst sjálfs sín. A örfáum ár- um auðnaðist honum að inna af hendi það þrekvirki, sem sett hefur síðan svip- mót á vestræna menningu. Þarna í kyrrð- inni og sveitasælunni varð hann svo sam- gróinn náttúrunni, aS honum fannst líf manna í borgum meingallað, og væri þess ekki að vænta, aS þeir fyndu þar sanna lífshamingju. Revenons á la nature, hverf- um aftur til náttúrunnar, verður við- kvæði hans. Þarna skildu leiðir hans og alfræðinganna að fullu, svo sem Diderots, Voltaires og d’Alemberts, sem flestir voru raunhyggjumenn og rökhyggjumenn. Þarna kynntist hann frú d’Houdetot, ungri og gáfaðri konu. Hún er sennilega eina konan, sem hann felldi hreina og djúpa ást til. Drauminn um hana tjáir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.