Andvari

Árgangur

Andvari - 01.06.1963, Blaðsíða 80

Andvari - 01.06.1963, Blaðsíða 80
78 ÞÓRHALLUR VILMUNDARSON ANDVARI dvöldumst í Lance-aux-Meadows, létum við Helgi Ingstad, Ian Whitaker og Hans Hvide-Bang ljósmyndari loks verða af því að leita rúnasteina í vörðunum. Við snerum við hverjum steini, en ekkert kom í ljós. Ilver er staðurinn? Á þessu stigi máls er of snemmt að fullyrða, hver verða muni endanleg niðurstaða fornleifarannsóknanna við ós Svartandarlækjar. Það er þó ljóst, að þar hafa dvalizt fyrir mörgum öldum menn, sem kunnu til járngerðar, járnaldar- menn, og jafnframt hafa verið þar steinaldarmenn, að öllum líkindum Dorset- Eskimóar, sem skilið hafa eftir hin alkunnu áhöld steinaldarfólks, tinnu, stein- lampa, steinöxi o. 11. Nú er beðið rannsóknar á fjölmörgum viðarkolasýnishorn- um, sem tekin voru í rústunum í sumar, en með svonefndri carbon-14-aðferð á að rnega fara nærri um aldur viðarkolanna, eða nánar sagt: komast á snoðir um, hvenær trén, sem orðin eru að viðarkolum, hættu að vaxa. Vonandi mun takast á þann hátt að fá úr því skorið, hve snemma járnaldarmenn þessir voru hér á ferð. Þess má geta, að sjö sýnishorn, sem tekin voru í rústunum í fyrrasumar, benda til urn og yfir þúsund ára aldurs. En hver svo sem nfðurstaða þessara rannsókna verður, hljóta hinir merku fornleilafundir Ingstadshjónanna að verða til að glæða áhuga manna á Vín- landsferðunum og hvetja til frekari rannsókna. Og hinar gömlu spurningar um staðsetning hinna fornu norrænu ömefna á austurströnd Norður-Ameríku munu verða áleitnari en nokkru sinni fyrr. Því verður ekki neitað, að meðan greinarhöfundur dvaldist við Fagur- eyjarsund í sumar og virti fyrir sér staðhætti með hin fornu sagnarit í höndum, sóttu æ fastar á hann sögulegar og landfræðilegar röksemdir fyrir því, að Fagureyjarsund væri hinn fomi Straumfjörður. Með þær í huga var ekki hversdagslegt að ganga til Svartandarlækjar, svala þorsta sínum á drykkjarvatni Þorfinns karlsefnis, þvo af sér moldina í þvottalæk Guðríðar Þorbjamardóttur og spegla sig í laugamatni Snorra Þorfinnssonar. Þar sem vera má, að ýmsir hafi gaman af að velta þessum málum fyrir sér, skulu hér taldar fram með tilbærilegum fyrirvara helztu röksemdirnar: 1) Frásögn Eiríks sögu rauða af siglingarleið þeirra Þorfinns karlsefnis virðist geta komið vel heim við, að Fagureyjarsund sé Straumfjörður, og er þá miðað við hina sennilegu kenning Tanners um, að Broddgaltarhöfði (Cape Porcupine) sunnan Hamiltonflóa á Labrador sé hið forna Kjalarnes og sandströndin við höfðann sé Furðustrandir. Samkvæmt þeirri staðsetningu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.