Andvari

Árgangur

Andvari - 01.06.1963, Blaðsíða 57

Andvari - 01.06.1963, Blaðsíða 57
ANDVARI STANISLAVSKI 55 Vesturlöndum. Hvað leiksýningar hans varðar, verða þeir, sem ekki hafa séð þær, að styðjast við umsagnir hinna og dóma, er þær hafa séð. Leikarar þeir, sem unnu með honum fyrir byltinguna, hafa dreifzt um allar jarðir, þótt maður sjái sumurn þeirra bregða stöku sinnum fyrir (svo sem Akim Tamiroff og Michael Chekhov) í vissum Hollywood-kvikmynd- um, og fær maður þá ósjálfrátt löngun til þess að sjá þá í því umhverfi, sem þeir listrænt séð eiga heima í. En jafnvel þótt Listaleikhús þeirra Stanislavskís og Nemirovich-Danchcnkós í Moskvu hefði ekki verið við líði fram á þennan dag sem lifandi hefð og menn- ingarafl í samtímanum, þá myndi áhrifa Stanislavskís eftir sem áður gæta vegna bókar hans Leikarinn undirbýr sig. Margir leikarar hafa lesið hana og talið sig græða geysimikið á því. Aðrir hafa lesið hana að öllu eða nokkru leyti og talið hana lítt skiljanlega. Enn aðrir segj- ast hafa lesið hana, en eiga þá við, að þeir hafi alltaf ætlað sér að gera það. Ekki er mér kunnugt um nema einn leikflokk meðal enskumælandi þjóða, sem hefur reynt að fara að kenningum Stanis- lavskís í framkvæmd, en það er The Group Theatre í New York og sá ég þann flokk sýna Golden Boy á sviði árið 1952. Lék hinn kunni leikari John Garfield aðalhlutverkið. Af öðrum kunnum mönn- um í þessum fræga lcikflokki má nefna leikritaskáldið Clifford Odcts, Luther Adler og Morris Carnovskv. Eitt aðalatriðið í kcnningu Stanis- lavskís er að ana ekki að því að leika hlutverkin, heldur reyna að finna innsta kjarna persónu þeirrar, sem leika á. En ekki er öllum venjulegum leikhúsum hent að nota sörnu aðferðir og Stanis- lavskí, því það krefst miklu lengri tíma til æfinga en gengur og gerist. Þannig eru leikararnir við Listaleikhúsið í Moskvu Stanislavskí sem Óthelló. stundum í hálft eða heilt ár eða lengur að æfa eitt og sama leikritið. Slíkt er að- eins hægt, þar sem ekki þarf að horfa í kostnað, en í þeirri öfundsverðu aðstöðu eru varla mörg leikhús í heiminum nú á dögum. Sá af kcnnurum Stanislavskís, sem ef til vill hefur haft einna mest áhrif á hann, var leikritahöfundurinn og leikstjórinn F. P. Komisarjevskí, en hjá honum stund- aði hann kerfisbundið nám. Síðan kynnt- ist hann af eigin reynd ýmsum hliðum leiklistar, því að hann lék í revíum, óper- ettum, harmleikjum og gamanleikjum, og um tíma virðist hann hafa verið að hugsa um að gerast óperusöngvari. Á öll- um þessum sviðum komu sömu eðlis- kostir hans í ljós: ódrepandi áhugi á starf- inu, vægðarlaus sjálfsrýni og hinn sjald- gæfi hæfileiki til þess að skipuleggja kerfisbundið niðurstöðurnar af eigin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.