Andvari

Árgangur

Andvari - 01.06.1963, Blaðsíða 50

Andvari - 01.06.1963, Blaðsíða 50
48 GUÐMUNDUR IIALLDÓRSSON ANDVARI stundum verið á ferli sarnan á nóttunni uppi á Röðlinum og séð bjarmann af sólaruppkomunni strjálast um skörðóttan fjallgarðinn á móti. Og nú voru þeir að leggja upp suður, bóndinn og bíllinn, og kærnu ekki aftur í dalinn nema sem gestir, þegar tímar liðu fram. Og það var alls ekki víst þeir kæmu báðir. Skilnaður bóndans og bifreiðarinnar yrði eitt af því hagræna, sem ekki yrði umflúið, eftir að kornið væri á mölina. Þetta var stór og átakamikill trukkur, sem slokaði í sig mikið af benzíni á vondurn vegum, keyptur af bernum og upphaflega gerður iyrir eyðimerkur- liernað. Það bafði oft reynzt þrautaráð bændanna í kring að fá hann til að flytja áburðinn fyrir sig á vorin, þegar bílstjóramir úti í kauptúninu höfðu neitað að leggja farartæki sín á hálfófæran veginn eftir dalnum. Og lengi var hann búinn að vera þrautalending okkar unga fólksins, ef við þurftum á sam- komur, áður en jeppamir komu til sögunnar og stundum eftir það. Eg rnundi eina slíka ferð að vorlagi, meðan klaki var enn ekki farinn úr jörð. Við, nokkrir strákar, höfðum fengið hann með okkur, af því að maðurinn, sem átti jeppann, vildi ekki taka nema þrjá farþega frarn yfir. Okkur hafði gengið þolanlega út eftir um kvöldið, nema yfir móinn, þar sem vegurinn var ómalborinn og ruddur eftir myldnum jarðvegi. Þar dró jeppinn kúluna niðri, og sums staðar urðu farþegarnir að fara út og ýta á eftir honum. Á heimleiðinni um nóttina mæltist jeppamaðurinn til að fá að vera á undan yfir móinn, svo trukkurinn gæti ýtt á eftir, ef allt ætlaði að kaffærast í svaðinu. Við stóðum uppi á pallinum og sáum þegar jeppinn ók á mikilli ferð út í vaðalinn og aurflóðið reis upp fyrir stuðarann og allt sat fast. Jeppamaðurinn sagðist ekki reyna að fara lengra með bílinn fyrr en þornaði urn og bað bóndann að kippa í hann aftur á bak þangað sem hann gæti lagt honum. Farþegamir úr jeppanum komu allir upp á pallinn á trukknum, en bóndinn var einn í stýrishúsinu. Það var komið fram undir fótaferðartíma og svalt í morgunsárinu. Við höfðum drukkið upp allt vín á ballinu, en reynt að syngja okkur til hita utan dalinn. Þegar ég sá að enginn ætlaði að setjast inn, fór ég niður í húsið, sem var hlýtt af heitri vélinni. Þegar bíllinn var kominn vel af stað suður móinn, setti bóndinn handbenzínið á, opnaði hurðina, steig út á hjólhlífina og handlangaði sig yfir grindurnar upp á pallinn til farþeganna. Eg heyrði hann söng með þeim hvert lagið eftir annað. Á meðan seig bíllinn hægt áfram eftir djúpum hjólfömnum og stýrði sér sjálfur í beygjunum. Eg var kominn heim á túnið, þegar élinu tók að létta og byrjaði að slá fyrir að sunnan. Bíllinn stóð enn kyrr á hlaðinu, þögull og staðfastur eins og hnjúkarnir með fram Norðurlandsveginum. Uppstyttan var alger, þegar ég stanzaði norðan við kirkjuna. Hún stóð þarna köld og einmana, fáeinum föðrn-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.