Andvari

Árgangur

Andvari - 01.06.1963, Blaðsíða 58

Andvari - 01.06.1963, Blaðsíða 58
56 ÆVAR R. KVARAN ANDVARI reynslu. Og það var einmitt ásamt Komi- sarjevskí, sem hann árið 1888 stofnaði Lista- og bókmenntafélagið, sem fyrr var nefnt. En tilgangur þess félags var að safna saman listamönnum úr öllum list- greinum til þess að tryggja gæði þeirra sýninga, sem hann stóð fyrir. Hann vakti fyrst á sér athygli fyrir uppsetningu leik- ritsins Avextir fræSslunnar eftir Tolstoy og fyrir leikrit, er hann samdi eftir sögu Dostojevskís, Sela Stephanchikov, en næstu leiksýningar hans færðu honum frægðina. A þessu tímabili var Stanislavskí undir miklum áhrifum frá Meiningen-leik- flokknum, sem var frægur fyrir sögulega nákvæmni í útfærslu tjalda og búninga. Þar lærði hann einnig að vinna af mik- illi nákvæmni að smáatriðum, og þá ekki sízt í hópatriðum; svo og að gæta þess, að atburðarás leiksins rynni snurðulaust. Aftur á móti hafnaði hann algjörlega allri tilgerð í flutningi ræðunnar og leitaði jafnan í þess stað einfaldleika og sann- leika í túlkun. Með stofnun Listaleikhússins í Moskvu 1898, sem þeir stóðu fyrir hann og Nemi- rovich-Danchenko, urðu tímamót í leik- listarsögu Rússlands og reyndar alls heimsins. Fyrstu verkefni Listaleikhússins voru Feodor Ivanovich keisari eftir Tolstoy (1898), Snjómærin eftir Ostrovsky (1900), Öfl myrkursins eftir Tolstoy (1902) og Júlíus Sesar eftir Shakespeare (1903). í þessum uppsetningum framkvæmdi Stan- islavskí hugmyndir þær, sem hann hafði útlistað í Bókmennta- og listafélaginu. Var þar allri tilgerð varpað miskunnar- laust fyrir borð; bæði svið og leikarar skyldu leitast við að gefa mynd af ýtr- asta raunsæi. Þannig varð Moskvuleik- húsið heimkynni naturalismans í leik- list. Meðal frægustu sýninga Stanislavskís telja fróðir menn uppsetningar hans á leikritum Chekhovs: Mávinum (1898), Vanja frænda (1899), Þrem systrum (1901) og Kirsiberjagarðinum (1904). Tvö síðastnefndu leikritin hafa verið sýnd hér hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Þjóðleik- húsi. í þessum uppsetningum kemur fram ný þróun í stíl Stanislavskís, því nú færist 'herzlan frá hinu ytra til hins innra, frá því að leggja megináherzlu á sannsögulegt útlit búninga, framkomu og siðvenja til sannra tilfinninga og stemn- inga. 1 ljóðrænum leikritum beitti hann músik til að undirstrika stemningu til- finninga og sýndi jafnframt fram á það hve varlega verður að taka á hinum við- kvæmu samtölum í Chekhov-leikritun- um, sem virðast svo hlutlaus á yfirborð- inu. Lagði hann í senn áherzlu á sál- fræðilegan skilning leikarans á hlutvcrk- inu og algjört látleysi í meðferð mælts máls. Þótt Stanislavski hafi, eins og að fram- an var getið, verið umdeildur sem leikari, þá er víst enginn vafi á því, að hann hefur verið frábær skapgerðarleikari. Með látlausri þjálfun tókst honum að full- komna tækni sína. Hann var rnaður skap- mikill og dulúðugur, en hafði hins vegar fullkomið vald á skapsmunum sínum. Ekki entist Stanislavskí ævi til að ljúka að fullu ritverkum sínum um leiklistina, því miklu var ólokið, er hann lézt árið 1938. Aðeins brot hafa varðveitzt af sið- ustu verkum hans, sem fjölluðu um þjálf- un leikarans við sköpun hlutverks og vinnu hans við hlutverk sitt. Þrátt fyrir það lét hann eftir sig urmul handrita um þessi efni (um 12000) og hefur Ráð- stjórnin skipað sérstaka nefnd til þess að koma skipulagi á þau. Það verður því ekki fyrr en öll kurl koma til grafar í þeim efnum, að arfleifð Stanislavskís til okkar leikhúsmanna kemur fvllilega í ljós.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.