Andvari

Árgangur

Andvari - 01.06.1963, Blaðsíða 114

Andvari - 01.06.1963, Blaðsíða 114
112 ARNÓR IIANNIliALSSON ANDVARl og hemlun, samþjöppun og dreifingu taugafcrla og gagnkvæmt span þeirra. Þetta lögmál er og eitt höfuðlögmál sovézkrar sálarfræði. Sliýrgreiningar nokkurra sálfræðilegra hugtaka. Skilyrðisbundin viðbrögð má greina í sundur cftir afli, endingu, cftir því, hvað þau eru flókin. Pavloff gerði tilraunir með viðbragðakeðjur af ýmsum tegund- um. Myndaði hann þá heila röð af við- brögðum hjá tilraunadýrinu, t. d. á rautt Ijós, bjöllu, blátt ljós, píp, taktmæli. Þessi fasta röð var síðan cndurtekin, þar til hundurinn hafði vanizt henni. Ef síðan var skipt um röð af áreitum eða um áreitin sjálf, þá kom fram sterk hernlun. Það varð tilraunadýrinu ofraun að endurbyggja þau tengsl, sem komizt höfðu á. Slíka viðbragðakeðju eða tengsla- kerfi milli heilastöðvanna kallaði Pav- loff „dýnamískt stereotýp". Þetta hugtak er undirstaða undir kenningu sálarfræð- innar um vana, ávana, venjur og er einnig hagnýtt við skýrgreiningu á minni. Sovézkir sálfræðingar skýrgreina venju- lega skynjun sem starf greinanna (ana- lýsatoranna), sem inna af hendi hina einföldustu og frumrænu greiningu og tengingu. Undirstaða skynjunar er því hin einföldustu skilyrðisbundnu viðbrögð. Kaflinn um skynjun í sovézkum sál- fræðibókum er því að mestu yfirlit yfii físíólógíu skynfæranna. Skynmynd (Wahrnehmung) er skýrð sem áhrif fleiri en eins áreitis á reseptor- ana samtímis og tenging taugaboða í heilastöðvunum, sem á eftir fer. Skyn- mynd endurspeglar því hlutina í heild. í þessum kafla sálarfræðinnar eru tekin til athugunar hugtök eins og t. d. at- hugun, skynjun á rúmi, sjónblekkingar (t. d. blekking Múller-Lyers), skynjun hreyfinga o. s. frv. Skynmynd er því skil- yrðisbundin viðbrögð, sem mynda heild (komplex). Ilugmynd (Vorstellung) er útskýrð út frá „sporum" í heilanum eftir spennu, sem áður hefur átt sér þar stað; sem mynd, er geymzt hefur í meðvitund manns, af hlutum skynjuðum í liðinni tíð. í sambandi við þetta hugtak eru tekin til meðferðar ímyndun og hug- myndaflug. Tilfinningar eru skýrgreindar með til- vísun í taugaferli undir heilaberkinum og í ósjálfráða taugakerfinu. Spenna dreifist, tekur yfir stöðvar undir heila- berkinum og í ósjálfráða taugakerfinu og veldur þannig breytingum á því. Æða- vídd breytist, hjartsláttur hægir eða herðir á sér, andlit fölnar eða roðnar o. s. frv. ,,I hinum flóknu skilyrðislausu við- brögðum (eðlishvötum) hefur enginn getað skilið hið físíólógísk-sómatíska frá hinu sálræna, þ. e. frá upplifun hinna voldugu tilfinninga hungurs, kynhvatar, reiði o. s. frv..“ (Pavloff). Pavloff skýr- greinir ennfremur tilfinningar sem tauga- ferli í heilahelmingunum með aðstoð og stuðningi hins dýnamíska stereotýps. Kaflinn um vilja skýrir mjög ýtarlega frá físíólógískri undirstöðu líkamshreyf- inga, fyrst og fremst útlima, og hugtakið vilji er skýrgreint sem hæfileiki manns- ins til að framkvæma hreyfingar, athafn- ir, samkvæmt fyrirframgerðri áætlun, beindar að meðvituðu markmiði. Minni er skýrgreint sem „spor“ í heil- anum ásamt með föstum tengslum (assó- síasjónum) milli skilyrðisbundinna við- bragða. Ut frá þessum sjónarhól eru svo rannsakaðar ýmsar tegundir minnis: vél- rænt minni, rökrænt minni, hlutlægt myndaminni, orðaminni, tilfinninga- minni, hreyfingaminni, sjónminni, heyrn- arminni o. s. frv. Athygli er skýrgreind sem starfsemi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.