Andvari - 01.06.1963, Qupperneq 71
ANDVARI
í SLÓÐ V í NLANDSFARA
69
Hér hugsum við okkur, að viS horfum af hæðinni vestan Svartandarlækjar norðaustur yfir
húsin við Flakvík, meðan þau stóðu uppi, og lit Fagureyjarsund. Neðst á myndinni liðast
Svartandarlækur og fellur út í Flakvík. Við ós hans má sjá húsin á fornum malarkömbum.
A bakkanum vestan lækjar er viðarkolagröfin, sem reykurinn liðast upp af, og örskammt
þaðan er rauðasmiðjan grafin inn í bakkann. Auk þess eru á vesturbakkanum eldstæði Eski-
móa og soðgryfja. Austan lækjar standa húsin á bogadregmtm malarkambi, og er þar mest
samstæða þriggja húsa nyrzt og austast, en eitt minna hiis (nema fleiri séu) nær læknum,
Þeim megin eru einnig Eskimóaeldstæði. — Handan nessins austan Flakvtkur er Dag-
verðarvík, þar sem nú stendur þorpið Lance-aux-Meadows. Þar fyrir austan er hamargnípan
Kollur, en yzt til hægri sést t fjarska Baldhöfði, nyrzti oddi Nýfundnalands. Uti á Helga-
flóa eru Stóra og Litla Helgaey, og ber hina síðarnefndu yfir Warrensey. Handan Fagur-
eyjarsunds, setn hér er um 50 km breitt, sér til strandar Labradorskaga, en t mynni sundsins
blasir við Fagurey og setur svip á umhverfið. Ef sigh væri beint út úr Fagureyjarsundi og
haldið stefnunni norðaustur, yrði komið að landi á lslandi eftir um 1300 sjómílna (um
2400 km) sigling.
Annað atriði í lýsingu Eiríks sögu á Hópi virðist einnig koma illa heim við
staðhætti hér. í sögunni er getið um „fjöll þau, er í Hópi voru“, og virðist vera
átt við allmikinn fjallgarð. Ekki er auðvelt að sjá, hver þau fjöll gætu verið, ef
hér er Hóp.
Dr. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður skýrði þegar eftir heimkomuna i
sumar frá helztu fornleifunum, sem fundizt hafa við Svartandarlæk. í stuttu
máli sagt eru aðalrústirnar á fornum bogadregnum sjávarkambi austan lækjar,
og er mesta húsasamstæðan nyrzt og austast, en smærri hús og aðrar mann-
vistarleifar vestar og nær læknum. Aðaluppgröft þessa svæðis hefur frú Anna
Stína Ingstad annazt, en auk hennar einkum Svíinn Rolf Petré, sem m. a. fann
þar í sumar lítinn hlut úr eiri með einföldu skrautverki. f hlut hinna íslenzku
leiðangursmanna kom fyrst að grafa prófskurði vestast á þessu svæði, en þar