Andvari - 01.06.1963, Síða 82
80
ÞÓRHALLUR VXLMUNDAHSON
ANDVARl
úr sjó meira hluta ársins. Á sama veg bendir lífsbjörgin, sem gafst, þegar veðr-
áttan batnaði: dýr (þ. e. hreindýr), egg, fiskur og hvalur — til norðlægra slóða og
gæti þess vegna vel átt við norðurodda Nýfundnalands.
5) Ekki er vandi að koma frásögninni af hamargnípu Þórhalls veiðimanns
heim við landslag við Fagureyjarsund, sbr. fyrrnefnda hamra, Ivoll og Noll,
austan við Lance-aux-Meadows.
6) Ætla mætti, a,ð orð sögunnar um Straumfjörð: „Þar var fagurt lands-
lag“ — væru of alrnenn, til þess að unnt væri að nota þau sem röksemd í þessu
máli — og þó! Ég hygg, að enginn, sem til Lance-aux-Meadows kemur, verði
ósnortinn af sérkennilegri fegurð staðarins (sjá yfirlitsmynd at umhverfinu, senr
fylgir greininni), og sú náttúrufegurð verður, að ég ætla, enn áhrifameiri, þegar
lengi hefur verið horft á tilbreytingarlítið skógarland, senr víðast er á þessurn
slóðum.
7) Að lokum mætti nefna þá almennu landlræðilegu röksemd, að lega
norðurodda Nýfundnalands sé slík, að einmitt þar sé þess að vænta, að Vínlands-
farar hafi setzt að og haft bækistöð, þótt lengra hafi þeir skyggnzt suður á bóg-
inn. Ef Fagureyjarsund er Straumfjörður, er blátt áfram furðulegt til þess að
hugsa, hve einföld leiðarlýsing gat nægt til að vísa mönnum siglingarleiðina frá
Brattahlíð til einnar tiltekinnar smávíkur á hinni óralöngu austurströnd Norður-
Ameríku: Siglið vestur til Marklandsstrandar, haldið síðan suður með landinu
fram hjá Kjalarnesi og Furðuströndum, þar til þið komið að straumhörðum firði
með sérkennilegri eyju úti fyrir. Haldið að landi við lyrsta vatnsfall sunnan
fjarðarins.
Þessi leiðarlýsing nægði, til þess að menn rötuðu frá Brattahlíð til húsanna
í Flakvík við Fagureyjarsund.
Þetta skal að endingu sagt til að korna í veg fyrir misskilning:
Þó að þykja rnætti líklegra, að við norðurodda Nýfundnalands væri fremur
að leita hins forna Straumfjarðar en Hóps á Vínlandi, eftir lýsingum þessara
staða í Eiríks sögu að dæma, þarf ekki þar með að vera loku skotið fyrir, að þar
geti jafnframt verið urn að ræða Leifshúðir Grænlendinga sögu. Þeirri hugsan-
legu lausn er sjálfsagt að gefa gaum, að í Grænlendinga sögu hafi tveir ólíkir
staðir verið gerðir að einum (Straumfjörður -j- Hóp — Leifsbúðir). Sú tilgáta
gæti skýrt ýmislegt, sem ella er torskilið í hinum fornu frásögnum.
í október 1962.