Andvari - 01.01.2002, Page 188
186
GUÐRÚN KVARAN
ANDVARI
danski styrkur náði skammt. Nauðsynlegt var að afla meira fjár og 1919 fékk
Björg þá snjöllu hugmynd að „orðabókin ætti að eiga sig sjálf Með þessu
átti hún við að allt það fé sem aflaðist fyrir sölu bókarinnar skyldi renna í sér-
stakan sjóð, sem héti Hinn íslensk-danski orðabókarsjóður, og skyldi það fé
síðan notað til næstu útgáfu. Björg fór til Islands vorið 1919 til að vinna mál-
inu fylgi meðal þingmanna og ríkisstjórnar og varð vel ágengt. Hún fékk Al-
þingi til að leggja fram hluta þess fjár sem til útgáfunnar þyrfti gegn því að
Danir legðu fram hinn hlutann. Aður en hún hélt heim aftur hafði hún gert
samninga bæði við Jón Ofeigsson og prentsmiðjuna Gutenberg.
Framganga Bjargar vakti athygli. Jón Ofeigsson skrifaði til Sigfúsar 18.
ágúst 1919:
Eftir því sem maður kemst næst, munu horfur yfirleitt góðar, enda hefur kona þín unn-
ið ósleitilega og haft tal af mörgum þingmanninum, eða rjettara: þrumað yfir hausamót-
unum á þeim, og sjerstaklega hvöt finnur hún hjá sjer til þess að leita uppi þá, sem verst-
ir eru sagðir viðureignar. Get jeg ekki annað sagt en að jeg dáist að henni fyrir dugnað-
inn (Lbs. 3464 4to).
Svipuð ummæli er að finna í bréfi frá Jóni sem hann skrifaði Sigfúsi 31.
ágúst 1919:
Þá er kona þín á förum hjeðan og flytur þjer góðar frjettir af veru sinni hjer. Hún hefur
verið ötul og ótrauð, enda komið miklu til leiðar, meiru en sjálfsagt bæði þú og jeg hefð-
um búist við. Get jeg ekki annað sagt en að jeg dáist af dugnaði hennar. Fjárveiting al-
þingis til orðabókar þinnar mun nú að fullu trygð, ef nokkru má treysta, og það allmiklu
ríflegri en ráð var fyrir gert. Eru það góðar lyktir. Þá tókust konu þinni ekki síður samn-
ingamir við Gutenberg, þeir eru sjálfsagt eins góðir og frekast mátti gera sjer vonir urn.
Það er enginn hægðarleikur og þarf festu og einbeitni til þess að semja á þessum tímum.
En þá kosti hefur hún greinilega til að bera. Jeg hef auðvitað af veikum mætti stutt hana,
en þakka mjer engan snefil af árangrinum (Lbs. 3463 4to).
Af þessu má ráða að Jón bar mikla virðingu fyrir dugnaði Bjargar við öflun
fjár til útgáfunnar. I bréfi frá 19. september sama ár segir hann frá því að
orðabókarmálinu hafi reitt vel af á þinginu „og sjer þar kona þín ávöxt verka
sinna“ (Lbs. 3464 4to). Hann hefur einnig skrifað Holger Wiehe og sagt hon-
um fréttirnar því að hann segir í bréfi til Sigfúsar 14. nóvember 1919: „Já,
Jón Ofeigsson hefur sagt mjer frá afreksverkum konunnar þinnar. Hefur
henni sannarlega verið ágengt“ (Lbs. 3474 4to).
Utgáfan reyndist mun kostnaðarsamari en gert hafði verið ráð fyrir. Ymis-
legt olli því, meðal annars hækkun á launakostnaði, kaup á letri til setningar-
innar og breytingar og viðbætur í próförk (Björg C. Þorlákson 1928:4; Stef-
án Karlsson 1997:4). Björg reyndi eftir mætti að afla fjár og í því skyni skrif-
aði hún 1928 bæklinginn Island skapar fordœmi og lét dreifa til þingmanna.